Volkswagen Caddy.
Volkswagen Caddy er hannaður með það fyrir augum að setja ný viðmið í flokki lítilla sendi- og fólksbíla. Hvort heldur sem bíllinn ber þig gegnum umferðarþunga eða lítið ekna vegi, þá er Caddy sparneytinn, þægilegur og ánægjulegur í akstri.
Að sjálfsögðu þá sameinar Caddyinn hina vel þekktu eiginleika Volkswagen sem ná til áreiðanleika, hámarksgæða fyrir hagstætt verð og framúrskarandi hönnunargæða. Þessi háu viðmið endurspeglast í lágum kostnaði vegna langs endingartíma og yfirbyggingin er galvanhúðuð og með 12 ára ábyrgð gegn gegnumtæringu sem tryggir að Caddy verður í umferð um ókomin ár.
Í dísilvélunum eru svokallaðir „dæluspíssar," en það er ný innsprautunartækni sem leiðir til hámarks nýtingar á eldsneytinu. Með þessum búnaði verður eldsneytiseyðslan minni og jafnframt dregur úr magni skaðlegra lofttegunda í útblæstri.
Volkswagen Caddy býðst í tveimur útgáfum - sem sendibíll eða fólksbíll (Caddy Life). Hvor hentar þér betur?
|
Staðalbúnaður
Öryggisbúnaður: ABS hemlakerfi með spólvörn, aftengjanleg Dagljósabúnaður Loftpúði Tvöfaldar afturhurðir
Þægindi: Burðargeta 750 til 810 kg Fjarstýrðar samlæsingar Geislaspilari frá framleiðanda með útvarpi Geymsluhólf undir sætum Gúmmídúkur í farmrými Hæðarstilling á bílstjórarsæti Rafdrifnar rúðuvindur Rafstýrðir og hitaðir útispeglar Stigalúga Tvær hliðarhurðir Velti- og aðdráttarstýri Þil fyrir aftan bílstjóra og farþega í framsæti Þurrka á afturhurð
|