Caddy sendibíll er hannaður með það fyrir augum að setja ný viðmið í flokki lítilla sendibíla. Hvort heldur sem bíllinn ber þig gegnum umferðarþunga eða lítið ekna vegi, þá er Caddy sendibíllinn sparneytinn, þægilegur og ánægjulegur í akstri.
Caddy sameinar hina vel þekktu eiginleika Volkswagen sem ná til áreiðanleika, hámarksgæða fyrir hagstætt verð og framúrskarandi hönnunargæða. Þessi háu viðmið endurspeglast í lágum kostnaði vegna langs endingartíma og yfirbyggingin er galvanhúðuð og með 12 ára ábyrgð gegn gegnumtæringu sem tryggir að Caddy verður í umferð um ókomin ár.