HeimIHafðu sambandIVeftré
Volkswagen Caravelle.

Volkswagen Caravelle.

Caravelle
Volkswagen Caravelle.

Volkswagen Caravelle.

Nýr Caravelle


Caravelle er einstæður í hópi fólksflutningabíla. Hann er á heimavelli þegar fjölskyldan fer í ferðalag og ekki síður þegar aka þarf viðskiptavinunum út á flugvöll. Í hönnun hans felst yfirlýsing um frelsi og sjálfstæði og hann skilar þér ávallt með þokka á áfangastað. Caravelle setur kosti rýmis og fjölbreytileika í nýjar hæðir. Fáir aðrir bílar keppa við hátt þægindastig Caravelle og fjölbreytileika í notkun.
Ferðast með þokka

Ferðast með þokka

Í Caravelle eru sæti eru fyrir allt að níu manns. Farangursrýmið í Caravelle, ásamt fjölmörgum geymsluhólfum, skúffum, bökkum og vösum, tryggir að það er ávallt nóg rými í bílnum, jafnvel þótt sjö manns ferðist í honum.

Afl


Ökumaðurinn kemst fljótt að því að það er hrein ánægja að aka Caravelle. Mikið afl og viðbragð kemur á óvart frá úrvali sparneytinna TDI PD díselvéla sem skila allt að 174 hestöflum, og frá V6 bensínvélinni sem sem afkastar hvorki meira né minna en 235 hestöflum. Stöðugar tæknilegar umbætur á vélarlínu Caravelle hafa aukið visthæfni bílsins og vélarnar uppfylla EU 4 reglugerðina um magn mengandi efna í útblæstri. Díselvélarnar hafa ennfremur þann kost að vera búnar díselsótagnasíu (DPF) sem dregur úr magni sótagna í útblæstri.

Staðalbúnaður



Öryggisbúnaður:
ABS hemlakerfi með spólvörn og stöðugleikastýringu
Dagljósabúnaður
Loftpúði fyrir bílstjóra

Þægindi:
2 opnanlegar hliðarrúður
4 aurhlífar
4ra svæða loftfrískunarbúnaður
8 farþegar, 9 manna (2 farþegar hjá ökumanni)
Aksturstölva
Armpúðar á bílstjórastól
Dúkur á gólfum
Fjarstýrðar samlæsingar
Gardínur í hliðarrúðum
Heill afturhleri
Hliðarhurð á hægri hlið
Rafstýrðir og hitaðir útispeglar
Samlitir stuðarar og speglar
Útvarp og geislaspilari með 4 hátölurum
Velti- og aðdráttarstýri
Þokuljós í framstuðara
Innifalið í rekstrarleigu: 20.000 km akstur á ári, þjónustuskoðanir og smurþjónusta skv. þjónustuhandbók.

Annað:
16” felgur með heilum hjólkoppum o.fl.
© Volkswagen 2008IImprintILegal Statement