Ljúfur í akstri
Lipur og rásfastur í beygjum, snarpur í framúrakstri og auðveldur í allri stjórn í líkingu við hefðbundinn fólksbíl. Í boði eru mismunandi útfærslur á undirvagni, svo sem stífari fjöðrun, sem ljær bílnum sportlegri hreyfingar og lækkuð vegfríhæð. Aðstaða ökumanns er hönnuð með það að markmiði að aksturinn verði sem þægilegastur og sem dæmi eru ökumannsstóllinn sérstaklega bólstraður með sjónarmið vinnuvistfræðinnar í huga.
Það skiptir engu hvert þú ferð eða hvern þú tekur með þér, fyllst öryggi er ætíð með í för þegar þú ekur Multivan. Öryggið felur í sér staðalbúnað, sem inniheldur ABS hemlalæsivörn, rafræna mismunadrifslæsingu (EDS) og ASR spólvörn. Þessi rafræni búnaður aðstoðar ökumann sjálfvirkt við stjórnun bílsins, ef hætta skapast, og grípur á broti úr sekúndu inn í aksturinn í gegnum hemlakerfið og stjórnkerfi vélarinnar. Stöðugleikastýring (ESP) er fáanleg sem aukabúnaður. Með sumum vélum er stöðugleikastýring staðalbúnaður.
Til verndar þeim sem eru í framsætum eru framhliðar- og höfuðloftpúðar, ef til áreksturs kemur. Og vegna þess að huga þarf sérstaklega að öryggi barnanna eru svokallaðar ISOFIX festingar fyrir barnabílstóla við öll sæti afturí Multivan, nema við miðsæti í þriggja manna bekk. Einnig eru fáanlegir allt að fjórir barnabílstólar fyrir börn á vaxtarskeiði, sem innbyggðir eru í sætin. Þannig eru litlu farþegarnir í Multivan alltaf vel varðir.
Val er um tvær gerðir - Trendline eða Comfortline. Hvor hentar þér betur?