Hagnýtur föruautur
Multivan Comfortline er hagnýtur förunautur í allar þínar ferðir. Meðal staðalbúnaðar eru sæti fyrir sjö manns og ríflega útilátið og fjölbreytilegt innanrými, sem nýtist jafnt á styttri ferðum með marga farþega eða þegar þú gerir magninnkaupin. Þægindabúnaður af ýmsu tagi stuðlar að því að ökumaður og farþegar njóta allra ferða í afslöppuðu andrúmslofti.
Fyrirfinnst fjölhæfari, hagnýtari og fjölbreytilegri fólksflutningabíll í veröldinni? Við teljum ekki svo vera. Lykillinn að hámarksnýtingu á innra rými Volkswagen Multivan er einstætt brautakerfið í gólfinu sem auðveldar að laga rýmið að margbreytilegum þörfum hvers og eins.
Fjöldi bakka og glasahaldara sinna því hlutverki að halda hlutunum í skorðum og aðgengilegum fyrir farþega. Nýstárlegt fjölnýtilegt borð er í brautakerfinu í afturrýminu og hægt er að stilla það af í samræmi við sætaskipan hverju sinni. Einfaldlega snjallt og dæmigert fyrir Volkswagen.