Pláss fyrir alla starfsmenn
Transporter Kombi er ákjósanlegur fyrir vinnuflokka allt að fimm manns. Með þremur aftursætum komast fimm manns þægilega fyrir í Transporter Kombi. Gluggar eru í hliðarrennihurðum og slitsterk gúmmíklæðning á gólfum. Nóg rými er í Transporter Kombi fyrir þig og vinnuflokkinn án þess að gengið sé á hleðslurými aftast í honum.
Val er um stutt eða langt hjólhaf og 5,8 til 9,3 m³ flutningsrými. Transporter Kombi tryggir því að jafnan sé einnig nægilegt pláss fyrir öll verkfæri að auki. Mjög fjölhæfur
Hönnun sem býður upp á fjölhæfni og breytileg sætaskipan í Transporter Crewvan tryggja það orðspor sem fer af honum sem fjölhæfum vinnubíl. Aftursætin er þannig gerð að auðvelt er að leggja þau niður. Crewvan aðlagar sig því auðveldlega að breyttum farþegafjölda eða magni farms.Langur og stuttur
Transporter Crewvan býður líka upp á sveigjanleika í innanrými og farmrými með vali á undirvagni með annað hvort stuttu eða löngu hjólhafi. Með styttra hjólhafi er bíllinn boðinn með lág- eða miðþekju og flutningsrými frá 5,8 m³ til 6,7 m³. Með lengra hjólhafi er Crewvan boðinn með lág-, mið- og háþekju með flutningsrými frá 6,7 m³ til 9,3 m³.