HeimIHafðu sambandIVeftré
Transporter sendibíll.

Transporter sendibíll.

Transporter sendibíll.

Transporter sendibíll.

Þýskur uppruni


Transporter sendibíll er afrakstur 50 ára reynslu og nákvæmni þýskrar verkfræðikunnáttu, nýsköpunar og fágunar. Orðspor það sem fer af Transporter sendibíl, núna í fimmtu kynslóð, segir allt sem segja þarf.

Transporter sendibíll hefur akstursþægindi fólksbifreiðar. Afkastageta og notagildi bílsins gerir hann að Trójuhesti sendibílanna. Sæti eru sérstaklega hönnuð með þægindi í huga á langferðum, uppsetning á mælaborði er sérlega notadrjúg, geymsluhólf fyrir ökumann eru hvarvetna, loftfrískunarkerfi, aflstýri og rafstýrðar rúður eru staðalbúnaður í Transporter Van. Alls kyns innbyggður öryggisbúnaður og fjöldinn allur af hagnýtum hönnunarlausnum uppfylla kröfur nánast allra í hvaða vinnuumhverfi sem er (til dæmis opnanlegur afturhleri og val um eina eða tvær rennihurðir á hliðum). Það er engin tilviljun að Transporter er einn mest seldi sendibíll heims.

Rými


Transporter sendibíll hefur yfir rými að ráða til að koma aðföngunum á áfangastað. Með hleðslurými frá 4,3 m3 til 9,3 m3 er tryggt að allt það rými er til staðar sem þú þarfnast. Transporter sendibifreið er fáanleg samkvæmt þínum óskum með stuttu hjólhafi með lág- eða miðþekju, eða með löngu hjólhafi með lág-, mið- eða háþekju. Ríflegt rými Transporter sendibílsins nær líka til tvöfalds farþegasætis sem er niðurfellanlegt þegar aukapláss eða aukafarmrými þarf að vera til staðar. Í Transporter er plássið ekki vandamál.

Vélarval


Val er um aflmikla bensínvél og ofursparneytna forþjöppudíselvél (TDI). Transporter Van býr yfir fáguðu afli, miklu togi, sveigjanleika og sparneytni. Aflið er frá 75-173 kW og valið stendur á milli fimm gíra handskiptingar eða sex þrepa Tiptronic sjálfskiptingar. Rétti bíllinn er því ávallt í boði fyrir hin margvíslegu verkefni.

Transporter er fáanlegur með:


  • 2,0 l bensínvél, 85kW með 5 gíra handskiptingu.
  • 3,2 l V6 bensínvél, 173kW með 6 þrepa sjálfskiptingu.
  • 1,9 l TDI-vél, 62kW með 5 gíra handskiptingu.
  • 1,9 l TDI-vél, 75kW með 5 gíra handskiptingu.
  • 2,5 l TDI-vél, 96kW með 6 þrepa sjálfskiptingu.
  • 2,5 l TDI-vél, 128kW með 6 gíra handskiptingu eða 6 þrepa sjálfskiptingu.
© Volkswagen 2008IImprintILegal Statement