HeimIHafðu sambandIVeftré
Umhverfisstefna Volkswagen hlýtur alþjóðlega viðurkenningu.

Umhverfisstefna Volkswagen hlýtur alþjóðlega viðurkenningu.

10/10/2007  I  Fyrirtækið  I  Umhverfið
Umhverfisstefna Volkswagen hlýtur alþjóðlega viðurkenningu.

Umhverfisstefna Volkswagen hlýtur alþjóðlega viðurkenningu.

Leiðandi staða Volkswagen

Leiðandi staða Volkswagen

„Viðurkenningarnar staðfesta leiðandi stöðu Volkswagen í umhverfismálum þegar kemur að endurvinnslu á bifreiðum," sagði Dr. Ulrich Hackenberg við þetta tækifæri en hann ber ábyrgð á þróunardeild fyrirtækisins. Hann segir framsækna endurvinnslu lengi hafa verið hluta af framleiðsluferlinu hjá Volkswagen. Á síðasta ári fékk Volkswagen „Evrópsku viðskiptalífsverðlaunin á sviði umhverfismála" auk umhverfisverðlauna sem Samtök iðnaðarins í Þýskalandi veittu fyrirtækinu fyrir brautryðjendastarf við endurvinnslu bifreiða.

„Þessar viðurkenningar eru mjög ánægjulegar því þær endurspegla þann góða árangur sem Volkswagen verksmiðjurnar hafa náð í umhverfismálum um leið og þær sýna að kolefnisjöfnunarátak okkar hjá HEKLU og sala á grænum Volkswagen á Íslandi er í góðu samræmi við umhverfisáherslur Volkswagen verksmiðjanna,“ segir Knútur G. Hauksson forstjóri HEKLU.

Brautryðjendastarf í endurvinnslu – Volkswagen-SiCon ferlið
Volkswagen hóf samstarf við SiCon GmbH árið 1999 um að þróa endurvinnsluferli fyrir bifreiðar í lok líftíma þeirra. Þetta ferli hefur reynst mjög áhrifaríkt skref í umhverfismálum og það hefur stuðlað að verndun náttúruauðlinda. „Við getum staðfest að strax í frumþróun bifreiðanna samþættir Volkswagen allar þær aðferðir sem krafist er og uppfyllir auk þess allar stjórnsýslu- og tæknikröfur sem eru í tilskipun Evrópusambandsins 2005/64/EC og varða hönnun sem styður endurvinnslu, framleiðslu og förgun í lok líftíma," sagði Ekhard Zinke, forseti Alþjóða vélflutningaráðsins þegar hann veitti Volkswagen viðurkenningarnar.

Vottorð um „endurnýtanleika, endurheimtanleika og endurvinnanleika", sem Alþjóða vélflutningaráðið veitir í nafni Evrópusambandsins, staðfestir að Volkswagen uppfyllir nú þegar stjórnsýslu- og tæknikröfur nýrrar Evróputilskipunar áður en hún tekur gildi í desember 2008. Þegar nýja tilskipunin hefur öðlast gildi, er öllum bílaframleiðendum skylt að sýna fram á endurvinnanleika með sannanlegum hætti, þegar sótt er um gerðarviðurkenningu nýrra bíla. Samkvæmt tilskipuninni eiga nýir bílar að vera endurnýtanlegir og/eða endurvinnanlegir að 85 hundraðshlutum að lágmarki og endurnýtanlegir eða endurheimtanlegir að 95 hundraðshlutum af eigin þyngd að lágmarki.

Volkswagen-SiCon ferlið sem felur í sér endurheimt efna í lok líftíma bifreiða er um leið verðmæt uppspretta hráefna. Eftir meðhöndlun í kerfinu er hægt að endurnýta harðplast, gúmmí, vefnað, gler og málmleifar í stað nýrra hráefna og stuðla þannig að verndun auðlinda jarðar. Fyrir utan vistfræðilegt gildi ferlisins felst einnig efnahagslegur ávinningur í að endurnýta hráefni á tímum hækkandi hráefnisverðs. endurvinnanleika

© Volkswagen 2008IImprintILegal Statement