
|
18/10/2007 I Fyrirtækið I Sala
8,2% söluaukning.
Innan tíðar verður nýjasta gerð Volkswagen, Tiguan, markaðssett. Nánar tiltekið hefst sala á bílnum í Þýskalandi 9. nóvember næstkomandi og í beinu framhaldi af því á öðrum mörkuðum. Yfir 10.000 pantanir hafa þegar borist í þennan fjórhjóladrifsbíl í Þýskalandi. Meira en 1.200 blaðamenn frá 45 þjóðlöndum hafa þegar reynsluekið í fyrsta sinn „litla bróður” Touareg. Viðbrögð þeirra hafa verið einróma jákvæð. Nálægt 12.000 starfsmenn bílaumboða og söludeilda þeirra sækja nú sérfræðiráðstefnu þar sem fram fer kynning á öllum þáttum Tiguan til undirbúnings fyrir markaðssetningu bílsins. Meðan þessu vindur fram heldur nýi Volkswagen Up! hugmyndabíllinn að vekja óskipta athygli. “Up! er samheiti fyrir brottför, hreyfingu, afl og framtíðina. Hann er bíll sem brýtur blað í sögu merkisins,” segir Winterkorn. Þessi nýstárlegi hugmyndabíll og borgarsnattari vakti gríðarlegan áhuga og eftirtekt þegar hann var frumsýndur á bílasýningunni í Frankfurt í síðasta mánuði. Annar nýr bíll í smábílaflóru Volkswagen verður frumsýndur eftir fáeina daga á bílasýningunni í Tókíó. “Stefna okkar sem framsæknasta bílaframleiðanda heims er ökutæki fyrir alla, gæði á hagstæðu verði og hagkvæmni fyrir viðskiptavininn,” segir Winterkorn. Á næsta ári verða heimsfrumsýningar á Passat Coupé og Scirocco sem styrkir enn frekar stöðu og tegundaframboð Volkswagen. Hin umhverfisvæna BlueMotion-fjölskylda Volkswagen nýtur mikillar hylli og þeim gerðum mun fjölga á næstu mánuðum og verða þá samtals 10. |
|||