
Volkswagen Group.
Tvö vörumerki: Volkswagen og AudiFólksbílaframleiðslu samstæðunnar er skipt upp í tvö vörumerki. Audi og Volkswagen eru þó sjálfstæðar einingar undir samstæðunni sem hvor um sig eru ábyrgar fyrir tekjumyndun fyrir sitt vörumerki á alþjóðlegum bílamarkaði. Innan vébanda Audi merkjavöruhópsins er Audi, SEAT og Lamborghini. Innan Volkswagen merkjavöruhópsins eru Volkswagen fólksbílar, Škoda, Bentley og Bugatti. Hvert vörumerki hefur sína eigin ímynd og stefnu og starfar sjálfstætt. Framleiðslan er allt frá ofursparneytnum smábílum, sem eyða aðeins þremur lítrum eldsneytis á hverja 100 ekna km, til lúxusbíla. Atvinnubílaarmur samstæðunnar er ábyrgur fyrir framleiðslu á atvinnubílum. SvæðisstjórnirVolkswagen samstæðan hefur stjórnunarskipurit sem nær til fjögurra heimssvæða; Evrópu, Norður-Ameríku, Suður-Ameríku og Asíu/Kyrrahafislandanna. Fjármálaþjónustu Volkswagen og Europcar bílaleigunum er stjórnað af Fjármálaþjónustudeild samstæðunnar. 45 verksmiðjur í 18 löndumInnan samstæðunnar eru starfræktar 45 verksmiðjur í ellefu löndum í Evrópu og sjö löndum í Norður-Ameríku, Suður-Ameríku, Asíu og Afríku. 336.000 starfsmenn Volkswagen framleiða yfir 21.500 bíla á hverjum vinnudegi auk þess að veita þjónustu sem tengist bifreiðum. Bílar Volkswagen samstæðunnar eru seldir í yfir 150 löndum. Markmið samstæðunnar er að bjóða upp á fallega, örugga og umhverfisvæna bíla sem eru samkeppnishæfir á stöðugt harðnandi samkeppnismarkaði og að setja alþjóðleg viðmið í hverjum stærðarflokki. |
|||