HeimIHafðu sambandIVeftré
Nýr Tiguan.

Nýr Tiguan.

Tiguan.

Tiguan.

+
Nýr Tiguan

Nýr Tiguan

Afl og sparneytni. Lítil fyrirferð og mikið rými. Menning og villt náttúra. Nýr Tiguan virðir engin landamæri. Í honum koma saman eiginleikar minni gerðar jeppa og hönnunareinkenni ekta sportbíls. Það kemur engum á óvart að nýr Tiguan kemur eins og sigurvegari inn á markaðinn með tvenns konar framendum.

Tiguan „Trend & Fun“ og „Sport & Style“ fyrir þá útlitsmeðvituðu

Í „Trend & Fun“ og „Sport & Style“ útfærslunum birtist glæsileg borgarbílahönnun. Niðursveigð framsvuntan gefur báðum gerðum sportlegt yfirbragð. Kvikleiki í borgarakstri er útgangspunktur. Sportfjöðrunin er stíf og fullkomlega uppstillt fyrir 4MOTION-fjórhjóladrifskerfið.
+
Tiguan „Trend & Fun“ og  „Sport & Style“ fyrir þá útlitsmeðvituðu
+
Tiguan „Track & Field“  fyrir þá ævintýragjörnu

Tiguan „Track & Field“ fyrir þá ævintýragjörnu

Torfærugeta Tiguan Track & Field er augljós við fyrstu sýn. Brattur framendinn skapar mikla veghæð sem gerir bílinn kjörinn til að takast á við hindranir með allt að 28 gráða aðhorni. Það er því ekkert til fyrirstöðu að beita bílnum hvenær sem er þar sem fyrirstöður er að finna. Þarna hjálpar ekki síst til að virkja má torfæruakstursham bílsins með einum rofa.

Allar gerðir: Tiguan vefurinn

Sýndur í torfæruakstri. Prófaður í borginni. Þróaður til framleiðslu á Tiguan vefnum. Þú getur átt von á því að fá spennandi innsýn í tilurð nýs Tiguan á framleiðslulínu okkar og heimsfrumsýningu í sýndarveruleika. Tryggðu að þú verðir einn af þeim fyrstu til að fá upplýsingar um fæðingu stórfenglegrar hugmyndar að ökutæki. Orð ná ekki að lýsa nýjum Tiguan. Það þarf að upplifa bílinn – á Tiguan vefnum.
+
Allar gerðir: Tiguan vefurinn
+
Hönnunin

Hönnunin

Nýr Tiguan er stæðilegur á vegi – og það með réttu. Ílöng vélarhlíf. Reistur a-póstur. Breiðar hjólaskálar. Nýr Tiguan sýnir styrk sinn á áhrifaríkan hátt. Það fer enginn auðveldlega fram úr þessu orkubúnti – hvort sem það er í borgar- eða torfæruakstri.
© Volkswagen 2008IImprintILegal Statement