|
|
Nýr Tiguan - Sport & Style.
| Tiguan Sport & StyleTiguan Sport & Style felur í sér allt sem þörf er á í borgarakstrinum – sportlega hröðun, breytilegar lausnir í innanrými svo ekki sé minnst á frábæra útlitshönnun. |
SportlegurSportleg hönnun á framenda með niðursveigðri framsvuntu kveikir í þér jafnvel áður en lagt er af stað. Í akstri veitir fjöðrunarkerfið, sem býðst með vali um stífari fjöðrunareiginleika, enn frekari ánægju. 4MOTION fjórhjóladrifskerfið, sem er staðalbúnaður í öllum gerðum, skilar allt að 150 hestöflum beint út til hjólanna (150 hö TSI, 8,4 l, 199 g/km CO2, 140 hö TDI, 7,2l, 189g/km CO2). | |
| Sterkbyggður Áberandi götubílahönnun með krómristum í vatnskassahlífinni, krómlögðum þakbogum og dekktum rúðum endurspegla á myndrænan hátt kraftinn í Tiguan Sport & Style. “Los Angeles” álfelgur ásamt svörtum listum á hjólaskálum og hurðarfölsum bæta enn á kraftalegt útlitið – ekki síst þegar bíllinn er á ferð. |
StíllGlæsilegt útlitið heldur sér líka að innan. Sportsæti að framan og leðurklætt stýri með álskreytingum tryggja að ökumaður hefur ávallt fulla stjórn á öllu þessu sportlega afli. Hraðastillir er staðalbúnaður og 17 tommu „Los Angeles“ álfelgurnar fullkomna hinn sportlega heildarsvip Tiguan Sport & Style. | |
| RýmiÞótt nýr Tiguan sýnist fyrirferðarlítill séður að utan er hann með 470 lítra farangursrými sem er stækkanlegt í 1.510 lítra með því að fella niður aftursætisbekkinn. Um leið verður til afar fjölbreytilegt rými með nægu plássi. Þetta má þakka fjölda snjallra hönnunarlausna, eins og til dæmis miðjuarmhvílu með geymsluhólfi, glasahöldurum og 12 V raffútaki. |
|