HeimIHafðu sambandIVeftré
Nýr Tiguan.

Nýr Tiguan.

Nýr Tiguan - Trend & Fun.

Nýr Tiguan - Trend & Fun.

+
Tiguan Trend & Fun

Tiguan Trend & Fun

Jafnvel í grunngerð er viðamikill útbúnaður í nýjum Tiguan sem stórlega eykur notkunarmöguleika bílsins úti á vegunum.

Hágæða smíði

Svört vatnskassahlíf í götuútfærslunni með laglegum krómramma gefur Tiguan Trend & Fun ákveðinn svip. Stíleinkenni, eins og hurðarhúnar að innan með áferð ryðfrís stáls undirstrika enn frekar glæsilegt svipmótið.
+
Hágæða smíði
+
Ríkulegur búnaður

Ríkulegur búnaður

Þægilegur búnaður eins og til að mynda loftfrískunarkerfið, sem er staðalbúnaður í öllum gerðum, og rafstýrð handbremsa, eykur stórlega þægindin í akstri úti á vegum. Einnig er hægt að rafstýra stillingu á upphituðum hliðarspeglum innan úr bílnum. „RCD 210“ hljómkerfið er ekki síður eftirsóknarverður búnaður. Uppáhaldstónlistin sem leikin er í geislaspilaranum berst til eyrna í gegnum fjóra hátalara.

Nóg pláss

Í nýjum Tiguan er að finna fjölda haganlega gerðra geymsluhólfa, eins og til að mynda geymsluhólf sem er innfellt í þaklínuna og flöskuhólf innfelld í hurðarhliðar. Einkar notadrjúg hönnunarlausn er lengdarstillanlegur aftursætisbekkurinn sem jafnframt er með sætisbökum sem eru fellanleg í jöfnum hlutföllum.
+
Nóg pláss
+
Vellíðan í miklu rými

Vellíðan í miklu rými

Sestu inn og ræstu vélina. Allt í kring er sérvalið efni, eins og til dæmis sætisáklæði í „Metropolis“ stíl sem gert er úr hágæða áklæði, og skreytingar í mælaborði sem lakkaðar eru í áferð ryðfrís stáls. Þú getur vart beðið eftir því að taka utan um þriggja arma stýrishjólið og aka af stað.

Öruggur

Í nýjum Tiguan er líka öruggur akstur útgangspunktur þökk sé viðamiklu öryggiskerfi bílsins. Rafeindastýrð stöðugleikastýring (ESP) dregur úr undir- og yfirstýringu í beygjum. Hemlalæsivörnin með skrikstýringu (ASR) tryggir að ekkert hjólanna skriki þegar hemlað er á hálu vegyfirborði. Rafeindastýrð mismunadrifslæsing (EDL) jafnar dreifingu vélaraflsins. Átta öryggispúðar stuðla enn frekar að auknu öryggi farþega.
+
Öruggur
© Volkswagen 2008IImprintILegal Statement