HeimIHafðu sambandIVeftré
Golf.

Golf.

GolfGolf PlusGolf Variant
GolfGolf PlusGolf Variant
Golf.

Golf.

+
Aflmesti GTI sögunnar

Aflmesti GTI sögunnar

Allt síðan 1976 hafa þrír stafir verið táknmynd fyrir akstursánægju eins og hún gerist mest: GTI. Nú er komið að aflmesta GTI sögunnar, Golf GTI Edition 30. Útlit hans er enn magnaðra og FSI forþjöppuvélin skilar hvorki meira né minna en 230 hestöflum. Vélaraflinu er skilað til hjólanna, breiðra 235 hjólbarða á 18 tommu álfelgum, í gegnum sex gíra handskiptingu eða DSG-skiptingu með tveimur kúplingum. (Eldsneytisnotkun: 7,9-8,2 l/100 km; CO2 útblástur: 188-194 g/km)***

Nýr Golf R: Aflmesti Golf sögunnar

Golf R (Eldsneytiseyðsla: 9,7-10,8 l/100 km; CO2 útblástur: 233-259 g/km)* er kominn aftur og skilgreinir upp á eigin spýtur nýjan flokk bíla. Það sem gerir Golf R sérstakan er hve lítið hann lætur yfir sér þrátt fyrir að um sé að ræða hreinræktaðan sportbíll í getu. Golf R er sannkallaður gimsteinn fagurkerans.
Nýr Golf R: Aflmesti Golf sögunnar
Nýja TSI vélin: Hámarksafl, lágmarkseyðsla

Nýja TSI vélin: Hámarksafl, lágmarkseyðsla

Volkswagen er eini bílaframleiðandinn í heimi sem býður hina framsæknu TSI-vélartækni. Einkennandi fyrir nýju vélina er bein innsprautun og tvöföld forþjöppun með keflablásara og forþjöppu. Á þennan hátt samtvinnar Volkswagen afl eins og frá tveimur vélum og býður upp á sportlegan akstur með mikilli sparneytni.

Golf fær iPod

Eitthvað fyrir alla. Annar er konungur veganna og hinn nýja stjarnan í tónlistarheiminum. Nú er hægt að upplifa Golf og iPod á sama tíma. Nýtt iPod stjórnborð býður upp á stafræna tónlistarupplifun. Í hvert sinn sem lagt er af stað í Golf er hægt að hafa með sér allt að 15.000 lög. iPod er einfaldlega stungið í samband í stjórnborðinu sem staðsett er í miðjuarmhvílunni. Tækinu er stjórnað með rofum hljómtækjanna í bílnum eða frá fjölrofastýrinu. Stjórnborðið er samhæft fyrir iPod G3 og G4, iPod mini og iPod photo. “iPod stjórnborð” er fáanlegt í allar búnaðarútfærslur Golf og Golf Plus.
Golf fær iPod
© Volkswagen 2008IImprintILegal Statement