|
|
Hönnun.
Augljós verðmæti: ÚtlitshönnuninNýr Golf VI vekur aðdáun fyrir sína fáguðu útlitshönnun. Þar eru ráðandi vandað vinnubragð og stílfagurt útlit. Framendinn býður af sér sportlegan þokka með áberandi fagurri vatnskassahlíf ásamt aðaljóskerum, sem eru glæsileg ásýndum. Hinar formfögru útlínur hliðanna tengja svo saman fram- og afturljóskerin og mynda þannig undurfagran hliðarsvip. | |
| Snilldarleg hönnunNýr Golf VI geislar af snerpu og afli, sem birtist ekki síst í nýrri hönnun bakhlutans: Tvö útblástursrör, sem vísa sterklega til hinnar ótæpilegu orku, sem leynist undir vélarhlífinni og ný gerð afturljóskera með kirsuberjarauðu gleri, sem fangar augun. Skýrar hliðarlínur með háglansandi áferð, sem mynda eina heild frá vatnskassahlíf að afturgafli, gefa til kynna spennandi og þróttmikið ökutæki. |
Vönduð innréttingUm leið og sest er inn í nýjan Golf blasir við glæsilegt og notalegt umhverfi. Það felst m.a. í fjölda krómaðra skrautlista á rofabrettum, á hurðaklæðningum og víðar og nýrri lögun mælasamstæðu með hvítri lýsingu, einkar þægilegri fyrir augun. Einnig eykur Climatic miðstöðin, sem er staðalbúnaður, á þægindin með því að halda stöðugt æskilegu hitastigi í farþegarýminu. | |
| Felgur með nýtt útlitMeð felgunum fær nýr Golf sérstakan og sannfærandi svip. Í boði eru sem staðalbúnaður 15-17” felgur og einnig eru fáanlegar sem sérstakur valbúnaður 18” felgur. Í Higline gerðinni eru 17” álfelgur staðalbúnaður. Sportpakkinn, sem er valbúnaður, inniheldur léttmálmsfelgur, sérstakan fjöðrunarbúnað, skyggðar hliðarrúður og gæslukerfi fyrir þrýsting í hjólbörðum. |
Nýjungarnar eru fyrir þigÞað er fyrst þegar nýjungarnar í bílnum nýtast öllum, að hann getur staðið undir nafninu „Bíllinn.” Einmitt þess vegna er að finna allar nýjustu uppfinningar á sviði bíltækni í nýjum Golf. | |
| Nýr Golf - 360° sýnÞegar maður fær áhuga á sérstöku ökutæki skiptir að sjálfsögðu miklu máli að hreyfillinn sé öflugur, að allur búnaður sé við hæfi og verðið sanngjarnt. En fyrstu áhrifin og einatt þau, sem ráða ákvörðun, eru þau sem augað nemur. Hvað er sérstakt við útlitið? Hvernig virkar hinn innri búnaður bílsins? Hér getið þið kynnt ykkur nýjan Golf allan hringinn og komist að hinu sanna um allt sem varðar útlit og innri búnað. |
|