Golf GT – Sportútgáfan í Golf-línunni.
| Sportútgærsla: Golf GTSportgenin í Golf erfast frá kynslóð til kynslóðar. Og yngsti afkomandi fjölskyldunnar, Golf GT, hefur þau líka í erfðaefninu. Golf GT er boðinn með tvenns konar vélum sem báðar eru 170 hestöfl. Sú fyrri er hin hátæknivædda 1,4 lítra Twincharger forþjöppuvél með TSI-tækni. Hin er 2,0 TDI díselvélin, ein sú aflmesta í heimi miðað við slagrými. Hún er með sótagnasíu. Báðar vélarnar bjóða upp á aflmikinn akstur en um leið mikla sparneytni. (Meðal eldsneytiseyðsla er 5,9-7,4 l/100 km. CO2 útblástur: 159-178 g/km)* |
TSI vélin. Hámarksafl. LágmarkseyðslaVolkswagen er eini bílaframleiðandinn sem býður upp á hina nýstárlegu TSI-tækni. Lykilatriði þessarar nýju vélar er samspil beinnar bensíninnsprautunar og tvöfaldrar forþjöppunartækni, annars vegar með keflablásara og hins vegar með forþjöppu. Með þessu móti nær Volkswagen gríðarlegu afli út úr vélinni og sportlegum akstri án þess að það sé á kostnað of mikillar eldsneytiseyðslu | |
| Kraftalegt útlitÚtlit Golf GT kallar á athygli. Hann er með sportfjöðrun og minni veghæð, áberandi framenda með samlitri, v-laga vatnskassahlíf með svörtum rimum og GT-merkinu. Sérhannaðar álfelgur og tvöfalt, áberandi púströr aðgreina hann frá bræðrum sínum. Það nægir að líta á GT til að sannfærast um að í honum býr mikil orka. |
Fersk hönnunSportsætin eru klædd “Brick”-tauáklæði sem gefur innanrýminu aukna dýpt. Þriggja rima, leðurklætt stýri með álígreypingum og þjöppumælir í mælaborðinu eykur enn á sportlegt yfirbragðið. “Black Onyx” ígreypingar fullkomna svo myndina. . | |
* Í samræmi við tilskipun 1999/94/EC
|