Nýr Golf R32. Prúðbúinn afreksbíll.
Nýr Golf R32 er spegilmynd þess sem skiptir máli. Það er aflmikil fágun í hverjum drætti þessa fjörmikla farkosts. Kraftmikil ára óvéfengjanlegrar Golf hönnunar, algjör tæknileg fullkomnun og sérvalin sportútbúnaður fær sérhvern upplýstan bílaáhugamann til þess að dást að R32. | Hreinræktuð snerpaHann hefur sterka nærveru á veginum og aksturinn er jafn áhrifamikill. 4MOTION sítengda fjórhjóladrifið tryggir hámarks veggrip bæði í hraðbrautaakstri og þröngum beygjum. Sérvaldar 18 tommu álfelgur og sportfjöðrun, sem lækkar veghæðina um 20 mm, gefa bílnum sérlega glæsilegt útlit. |
Ómælt aflUm æðar R32 rennur blóð hreinræktaðs gæðings. 6 strokka vélin er 3,2 lítrar að slagrými og skilar 250 hestöflum (eldsneytiseyðslan er 9,7-10,8 l/100 km. CO2 útblástur: 233-259 g/km). Hámarkstog er hvorki meira né minna en 320 Nm. Bíllinn hraðar sér úr kyrrstöðu í 100 km hraða á klst á 6,5 sekúndum og enn hraðar með DSG-skiptingunni, eða á 6,2 sekúndum. Á vélarhlífinni er merkingin “V6”, sem er öruggt tákn fyrir ómælt afl. | |
| Kraftalegt útlitÖkumenn vita um leið og þeir verða varir við R32 í baksýnisspeglinum að þar fer afar óvenjulegur Golf. R32 er auðþekkjanlegur á sérstakri lögun á vatnskassahlíf með rimum með álútliti, R32 merkinu og áberandi loftinntaki fyrir hina aflmiklu 3,2 lítra, V6 vél. Kraftmikil nærvera bílsins er enn frekar undirstrikuð með samlitum stuðurum og hemladælum í bláum lit. Önnur útlitsatriði eru meðal annars tvö púströr fyrir miðjum afturendanum og ljóskúplar með innbrenndum lit og bi-xenon aðalljósum. |
Innri styrkurSterkur persónuleiki R32 kemur ekki síður í ljós þegar hann er gaumgæfður nánar að innan. Hágæða, hæðarstillanleg sportsæti með Monte Carlo áklæði og R32 merkinu gefa hliðarstuðning fyrir sportlegan akstur. Þriggja rima sportstýri klætt götuðu leðri undirstrikar enn frekar sportlega eiginleika bílsins. Sérhannaðir pedalar, “Engine Spin” ígreypingar í mælaborði, miðjustokk og dyraskreytingar skapa sportlegt andrúm í innanrýminu. | |
| Búnaður fyrir afreksmennÖkumaðurinn getur einbeitt sér heilshugar að akstrinum í Golf R32. Um allt annað sér tæknibúnaður bílsins. “Climatronic” loftfrískunarkerfið sér um að halda hitastiginu í bílnum nákvæmlega eins og óskað er og “RCD 300” hljómkerfið með 10 hátölurum stuðlar að því að það skapist skemmtilegt andrúmslofti í bílnum. Í hanskahólfinu er kælibúnaður. Fótstæðin að framan eru upplýst og þegar farið er inn í bílinn eða út úr honum í myrkri sér heimreiðarlýsingin um að lýsa upp leiðina. Heimreiðarlýsingin ásamt innilýsingu er virkjuð með fjarstýringunni. |
Öryggi án málamiðlanaÍ R32 leggur þú allt traust þitt á bíl sem á móti gefur þér öryggistilfinningu í öllum aðstæðum. Sítengt fjórhjóladrifið veitir hámarksöryggi eins og ABS, ASR, EDL, ESP, hemlunaraðstoð og 17” hemladiskar. R32 er ennfremur með þjófnaðarvörn með rafstýrðum kyrrsetningarbúnaði og innanrýmisvöktun, dráttarvörn og baksýnisspegli með glýjuvörn. | |
* Samkvæmt tilskipun 1999/94/EC
|