HeimIHafðu sambandIVeftré
Golf Plus.

Golf Plus.

Innanrými.

Innanrými.

+
Golf Plus - sigurvegari í fjölmörgum prófunum fjölmiðla

Golf Plus - sigurvegari í fjölmörgum prófunum fjölmiðla

Golf Plus er í sérflokki. Í samanburðarprófun í bílatímaritinu Auto Bild (27/05, 20/05 og 23/05) skaraði hann fram úr keppinautunum. Sterku hliðar bílsins þóttu vera yfirburða aflrás, fjölbreytileiki í innanrýmisnýtingu og hagstætt verð. Þar með er ekki allt upptalið því Golf Plus stóð einnig uppi sem sigurvegari í samanburðarprófun “auto motor und sport” (10/05). Kynntu þér álit sérfræðinganna. Þú átt eftir að sannfærast.

Nýjar víddir í innanrými

Viltu fullkomið frelsi til athafna? Golf Plus uppfyllir allar væntingar sem þú gerir til mikils innanrýmis. Uppgötvaðu nýjar víddir í lífsgæðum í þeirri fullvissu að aksturinn verður afslappaðri en nokkru sinni áður í Golf Plus.
+
Nýjar víddir í innanrými
+
Meiri yfirsýn

Meiri yfirsýn

Hærri þaklína, hærri sætastaða, val um hæðarstillanlegt ökumannssæti og fullkomin nýting á innanrýminu tryggja þér og farþegunum meira rými og meiri þægindi. Njóttu akstursins í fullkomnu umhverfi þar sem höfuð- og fótarými er meira sem og yfirsýn út á veginn.

Nóg pláss

Farangursrýmið er 505 lítrar og stækkanlegt upp í 1.450 lítra með því að fella niður aftursætisbökin. Golf Plus er bíllinn fyrir þá sem þurfa mikið flutningsrými. Niðurfellanlegt framsæti er fáanlegt sem eykur enn frekar flutningsgetuna. Með því að fella niður sætisbakið er hægðarleikur að flytja mjög stóra hluti í bílnum.
+
Nóg pláss
+
Allt á sínum stað

Allt á sínum stað

Hönnuðir Golf Plus þurftu á miklu innanrými að halda til þess að koma fyrir öllum öryggisbúnaði bílsins og fjölda geymsluhólfa. Afrakstur vinnu þeirra er 42 geymsluhólf svo hægt sé að ganga að öllum hlutum vísum. Í bílnum eru hólf fyrir 1,5 lítra flöskur og sérstök hirsla fyrir vegakort sem tryggir að þau eru tiltæk nákvæmlega þegar þeirra er þörf.
© Volkswagen 2008IImprintILegal Statement