HeimIHafðu sambandIVeftré
Jetta.

Jetta.

Hönnun og afl

Hönnun og afl

Glæsileiki og mikið afl

Jetta er bíll í sérflokki. Ekki síst vegna velheppnaðrar útlitshönnunar og mikils úrvals véla, sem uppfylla þarfir flestra bílkaupenda. Jetta setur ný viðmið í stærðarflokknum með tæknilegum nýjungum, afli og og góðum aksturseiginleikum.
+
Glæsileiki og mikið afl
+
Sportlegur og fágaður

Sportlegur og fágaður

Jetta er glæsilegur bíll - hvert sem sjónarhornið er. Útlínurnar eru sportlegar og framsvipurinn hefur spennandi og óviðjafnanlegt svipmót. Það eru frískleg form á vatnskassahlífinni og fágaðir drættir eru í krómlistum við hliðargluggana (Comfortline, Trendline). Það er stílræn hönnun í hverjum drætti Jetta.

Fullkomin hlutföll

Nýr Jetta er stærri í öllum málum. 4,55 m á lengd og 1,78 m á breidd. Farþegarýmið er stærra en áður og bíllinn er þar af leiðandi þægilegur á allan máta og setur raunar ný viðmið á þessu sviði í stærðarflokknum. Farangursrýmið er líka meira en áður, alls 527 lítra. Með niðurfellingu á aftursætum er hægðarleikur að flytja hluti sem eru allt 1,90 m á lengd.
+
Fullkomin hlutföll
+
Fangandi yfirbragð

Fangandi yfirbragð

Aðalljósin og stefnuljós eru hlið við hlið undir gegnsærri glerhlíf sem gefur bílnum bæði fallegt yfirbragð og svo lýsir ljósabúnaðurinn upp veginn framundan með fullkomnum hætti. Engar fagurfræðilegar málamiðlanir eru gerðar á aftursvip Jetta. Nýstárlegt og nútímalegt útlit bílsins er enn frekar undirstrikað með kringlóttum LED-afturljósum.

Sportlegir eiginleikar

Jetta er einn bíll en í fjöldamörgum útfærslum. Vélaúrvalið er spennandi í nýjum Jetta. Grunngerðin er með 102 hestafla bensínvél. Aflmesta vélin er hins vegar 2ja lítra FSI forþjöppuvélin, sem afkastar 200 hestöflum og umbreytir Jetta í hreinræktaðan sportbíl. Nákvæmar og stuttar skiptingar eru í 6 gíra handskiptingunni sem stuðla að enn meiri aðgengileika að aflinu. (Eldsneytisnotkun: 6,9-8,6 l/100 km; CO2 útblástur: 166-206 g/km)*
+
Sportlegir eiginleikar

Mikil toggeta


Díselvélarnar í nýjum Jetta eru athyglisverðar fyrir mikla toggetu. Í boði er 1,9 lítra TDI sem afkastar 105 hestöflum og 2,0 lítra vél, 140 hestafla. Kostir vélanna eru ekki síst þeir að sparneytni og mikil toggeta haldast fullkomlega í hendur. Því veldur ekki síst bein innsprautun með allt að 2.050 bara þrýstingi. (Eldsneytisnotkun: 5,2-6,3 l/100 km; CO2 útblástur: 140-170 g/km)*

*Í samræmi við tilskipun 1999/94/EC.
© Volkswagen 2008IImprintILegal Statement