Hönnun.
| Einstæður í útlitiNýja Bjallan er bíll sem kveður að og er einstæður í útliti. Það er samræmið í bogadregnum línunum sem gefur honum sterkt svipmótið. Þakið er bogið og framrúðan framhallandi niður að vélarhlífinni og afturhlutinn sveigist langt niður að veginum. Mikið hjólhaf og sporvídd gefa honum kraftalegt yfirbragð. Klassísk smáatriði í innri hönnun vekja upp minningar um gömlu Bjölluna. Þannig brúar Nýja Bjallan bilið á milli bílahönnunar í fortíðinni og framtíðinni. |
Hönnun og notagildiEf ytra útlit Nýju Bjöllunnar fellur þér í geð er líklegt að þú fallir í stafi yfir farþegarýminu. Það er sportleg fágun og áþreifanlegur ferskleiki yfir skínandi króminu sem umlykur miðstöðvarristarnar, krómrammann í kringum mælana og nýju “Luna” og “Grafic” sætaáklæðin. Stjórnrofar eru skipulega uppsettir og þægilegir í notkun. Blá baklýsingin gefur innanrýminu enn frekari nýstárleika. Svo má ekki gleyma litla blómavasanum í mælaborðinu sem minnir á horfna tíma í nútímalegri hönnuninni. | |
| Hrein fagurfræðiSérstakt aðdráttarafl Nýju Bjöllunar lætur heldur engan ósnortinn úti á vegunum. Samlitir hliðarspeglarnir með innfelldum stefnuljósum vekja athygli og auka öryggi bílsins í kaupbæti því stefnuljósin eru sýnilegri öðrum vegfarendum. Hugkvæmni í notagildi og spennandi útlit helst í hendur í Nýju Bjöllunni – í hverju einasta smáatriði. |
Mikið lagt í innra rýmiÞað er einfalt að láta sér líða vel inni í Nýju Bjöllunni. Vönduð efni og afburða hönnun skapa inni í bílnum einstaklega bjart umhverfi. Það hjálpast allt við að gera akstur í Nýju Bjöllunni að einstæðri upplifun, ekki síst einstæð hönnun á mælum með krómhringjum, þægileg sætin, aragrúi af geymsluhólfum, velti- og aðdráttarstýri og fjórir hnakkapúðar. | |
| Sjónræn og skynræn upplifunHvarvetna blasir við fagurfræðileg nálgun í hönnun minnstu smáatriða í Nýju Bjöllunni. Gírhnúðurinn og handsbremsustöngin endurspegla fágaða hönnun stýrishjólsins. Þessi atriði eru ekki eingöngu sjónræn upplifun heldur ekki síður skynræn þökk sé fíngerðri áferðinni í plastinu sem þau eru gerð úr. |
Aðgreining með Exclusive pakkanumExclusive pakkanum fylgir allt sem gerir Nýju Bjölluna að draumabíl. Draumurinn hefst jafnvel áður en þú ekur af stað. Bílinn er opnaður án fyrirhafnar með fjarstýrðri samlæsingu. Ökumaður sest undir stýri, setur loftkælinguna í gang og nýtur hljómsins frá “alpha”-hljómtækjunum sem að sjálfsögðu eru með geislaspilara og diskaskipti. Geymsluhirslur eru víða, eins og til dæmis í framsætisbökunum, þar sem tilvalið er að geyma smærri hluti, og undir þægilegri armhvílunni í miðjuboxinu er önnur hirsla. Til að koma fyrir stærri hlutum er hægt að fella fram aftursætin og aftursætisbökin. Draumabíllinn. | |
| Munaður með PremiumMeð Premium pakkanum uppfyllir Nýja Bjallan allar þínir óskir. Hann innifelur meðal annars leðurklætt stýri, handbremsu og gírhnúð, geislaspilara með diskaskipti og armhvílu í miðju með geymsluhólfi. Að utan vekja “Las Vega” álfelgurnar athygli sem og þokuljós og fjarstýrðar samlæsingar. Í Premium pakkanum er líka “Easy Entry” aðgangurinn, loftfrískunarbúnaður, hæðarstillanleg framsæti og “gamma CD” hljómkerfi hannað í anda Nýju Bjöllunnar með geislaspilara og sex hátölurum. Munaðurinn getur vart orðið meiri. |
Hagnýtur og augnayndiÞú verður ástfanginn við fyrstu sýn. Í framhaldi af því sérðu æ betur óvænt og aðlandi smáatriði í Nýju Bjöllunni hvar sem á hana er litið. Þú þarft ekki að gera annað en að beina sjónum rétt upp á við til þess að fræðast um hver útihitinn er eða hvað tímanum líður. Fyrir ofan baksýnisspegilinn er nefnilega skjár sem sýnir tíma og útihita með blárri birtu. Glæsilega mótaðir hurðarhúnarnir taka upp stefið í ávölum formum Nýju Bjöllunnar. | |
Búnaður getur verið breytilegur eftir markaðssvæðum.
|