|
|
Ný Bjalla.
| RómantíkÞað sem gerir Nýju Bjölluna svo sérstaka er hin mikla alúð sem lögð er við öll smáatriði og fagurfræðina í lífinu sjálfu sem bíllinn endurspeglar. Litli blómavasinn í mælaborðinu er dæmi um þetta. Hann færir lífsgleði inn í farþegarýmið og ýtir undir þá góðu upplifun sem er að aka bílnum. |
AðgreiningMeðal þess sem Nýja Bjallan fær í arf frá forföður sínum er einstaklingshyggja bæði í formi og notagildi. Hæðarstillanlegt ökumannssæti tryggir þægilega setu undir stýri lagar sig fullkomlega að þörfum hvers og eins. | |
| VörnAnnað sem Nýjan Bjallan fékk í arf er hæfileikinn til að skila farþegum örugglega á áfangastað. Öryggispúðar og hliðaröryggispúðar fyrir ökuann og farþega í framsæti veita hámarksvörn komi til áreksturs og draga úr líkum á meiðslum á höfði, hálsi og brjóstholi. Öryggistilfinning er því allt umlykjandi í Nýju Bjöllunni. |
Stillanlegt stýriÞað finna allir kjörstöðu undir stýri í Nýju Bjöllunni, hvort sem þeir eru hávaxnir eða smávaxnir, með langan eða stuttan faðm. Stýrið er bæði með aðdrætti og veltu og því hægt að stilla það af svo afstaðan henti hvaða ökumanni sem er. | |
| Glæsileiki og jarðtengingÁ 15 tommu stálfelgum með laglegum hjólkoppum og breiðum 195 dekkjum er Nýjan Bjallan glæsileg ásýndum og með góða jarðtengingu. TDI-díselgerðunum og bensíngerðunum með allt að 85 kW fylgja þessi sportlegu dekk sem fullkomna akstursánægjuna í Nýju Bjöllunni. |
Allt á sinn staðAllt sem þú þarft að hafa með þér á styttri og lengri ferðum kemst auðveldlega fyrir í Nýja Bjöllunni. Sniðug geymsluhólf eru hvarvetna í bílnum, eins og tveir glasahaldarar að framan og einn að aftan, netvasar í framsætisbökum og læsanlegt hanskahólf með lýsingu. Ökumannsmegin er líka sérstakt hólf fyrir gleraugu í Nýju Bjöllunni. | |
| Vel upplýsturÞegar birtu tekur að bregða er Nýja Bjallan sérstaklega þægilegur íverustaður. Innkomuljós er með töf á sjálfvirkri slokknun og endurskinsljós eru á hurðunum. Tvö lesljós fyrir aftursætisfarþega undirstrika að Nýja Bjallan er fyrirtaks ferðabíll. |
Kraftmikið útlitÞeir sem velja 150 hestafla, 1,8 lítra vélina með forþjöppu, (eldsneytiseyðsla 8,1-9,2 l/100km; C02 útblástur: 194-221 g/km)* njóta bæði aflmikils aksturs, þæginda og hagkvæmni. Þokuljósin veita hámarksútsýni jafnvel í slæmu skyggni og snyrtileg vindskeiðin að aftan gefur honum sportlegt útlit. Í innanrýminu er allt til alls. Allir ökumenn kunna að meta leðurklæddan gírhnúð og handbremsustöng. | |
| Fullur af orkuVélarnar í Nýju Bjöllunni vekja athygli fyrir mikla sparneytni og lítið magn af skaðvænlegum útblæstri. Þetta á ekki síst við 75 og 102 hestafla bensínvélarnar (eldsneytiseyðsla 7,0-7,7 l/100 km, C02 útblástur; 168-185 g/km)*. 1,8 lítra forþjöppuvélin, sem skilar 150 hestöflum, býður upp á frábæra hröðun og sportlega aksturseiginleika. Og það skortir ekkert á aflið í 2,0 lítra bensínvélinni (eldsneytiseyðsla 8,7-9,5 l/100 km; CO2 útblástur: 209-228 g/km)* Báðar eru þessar gerðir fáanlegar með sjálfskiptingu. Hugnist þér betur díselvélar þá er Nýja Bjallan fáanleg með 1,9 lítra TDI-díselvél, 77 kW (eldsneytiseyðsla 5,4-5,5 l/100 km; C02 útblástur: 146-149 g/km)*. Allar vélarnar standast hina ströngu Euro 4 mengunarvarnareglugerð. |
Búnaður getur verið breytilegur eftir markaðssvæðum.
|