HeimIHafðu sambandIVeftré
The Passat.

The Passat.

PassatPassat Variant
PassatPassat Variant
Passat.

Passat.

+
Passat hlaut gullna stýrið

Passat hlaut gullna stýrið

Volkswagen Passat hlaut hið eftirsótta Gullna stýri í fimmta sinn síðan 1977. Þýska sunnudagsblaðið Bild am Sonntag hefur veitt þessi verðlaun á hverju ári um 30 ára skeið. Passat hafði mikið forskot á keppninautana í stærðarflokknum. Það sem Passat þykir hafa umfram keppinautana var einkum ríkulegur staðalbúnaður á sviði þæginda og öryggis sem er sambærilegur við bíla í lúxusbílaflokki. Það er auðvelt að venja sig á lúxusinn í Passat.

250 hestöfl og 3,2 lítra slagrými


Passat er með eftirtektarvert úrval aflmikilla véla. V6 FSI-vélinni fylgir sítengt fjórhjóladrif og DSG-skipting með tvöfaldri kúplingu. Hún afkastar 250 hestöflum . Þessi 3,2 lítra vél er einstaklega skemmtilegur valkostur. Staðalbúnaður með henni er þjófnaðarvarnakerfi, “Plus”-fjölaðgerðaskjár og 17” “Solitude” álfelgur. (Eldsneytisnotkun: 9,8-10,1 l/100 km; CO2 útblástur: 235-242 g/km)*.
250 hestöfl og 3,2 lítra slagrými
Passat Variant: Minnsta verðfallið í stærðarflokknum.

Passat Variant: Minnsta verðfallið í stærðarflokknum.

Í ársfjórðungslegri skýrslu evrópsku bílgreinasambandanna, Eurotax Schwacke (3/2005), var Passat Estate valinn sigurvegari í stærðarflokknum fyrir útlit og innanrými. Jafnframt kom í ljós að hann verðfellur minnst allra bíla í samanburðarflokknum. Auk þess nefndi Eurotax Schwacke hann sem bestu kaupin í flokki skutbíla í efri millistærðarflokki.

Premium símkerfi

Notkun bílsíma er gerð notendavænni í Passat en nokkru sinni áður. “Premium”-símkerfið, sem er aukabúnaður, framkvæmir allar símaaðgerðir með blátannartengingu. Ökumaðurinn þarf því ekki að líta af veginum á meðan. Kerfið skynjar SIM-kortið í farsíma um leið og bíllinn er ræstur og tengist honum sjálfvirkt. Þegar að öllu er gætt býður “Premium”-símkerfið upp á öll þægindi og kosti fasttengds bílsíma.
+
Premium símkerfi
Hamingjusamir farþegar

Hamingjusamir farþegar

RSE-afþreyingarkerfið frá Volkswagen Individual gerir ferð í aftursætum Passat og Passat Estate að sannkallaðri kvikmyndaupplifun. Þessi hátæknivæddi búnaður felur í sér einn eða tvo 7” TFT litaskjái sem eru innbyggðir í aftanverða hnakkapúða framsætanna, DVD-spilara í hanskahólfinu, fjarstýringu, tvenn heyrnartól og tengingu fyrir önnur jaðartæki, eins og iPod eða upptökuvél. Það gerir bíltúrinn að hreinni skemmtun að geta hlustað á tónlist, horft á kvikmyndir eða spilað í Playstation.

Passat Variant. Fallegur og rúmgóður.

Velgengnin heldur áfram. Með nýjum Passat Estate kynnir Volkswagen til sögunnar nýja kynslóð eins vinsælasta skutbíls sögunnar. Bíllinn býður upp á óviðjafnanlega akstursupplifun með þægindum og mikilli tækni. Passat Estate hefur áberandi útlínur, ómótstæðilegt innanrými og ríkulegan búnað jafnvel í grunngerðinni. Í Passat Estate samtvinnast fullkomið notagildi og töfrandi útlitshönnun.
+
Fimm stjörnur fyrir öryggi

Fimm stjörnur fyrir öryggi

Passat fékk fullt hús stiga, fimm stjörnur, í Euro NCAP árekstrarprófuninni fyrir varnir fyrir farþega. Prófunin staðfestir að vel er hugað að öryggi fullorðinna og barna í Passat, ekki síst vegna farþegarýmis sem er sterkbyggt og traust. Enn frekara farþegaöryggi felst í bílbeltabúnaði bílsins og skynrænum, virkum öryggisbúnaði eins og ESP og ACC (hraðastilli með aðlögunarhæfni).
Passat er fjórði bíll Volkswagen í röð sem fær fimm stjörnur í árekstrarprófun Euro NCAP. En ein sönnun þess að Volkswagen setur markið hátt þegar kemur að öryggi.
© Volkswagen 2008IImprintILegal Statement