HeimIHafðu sambandIVeftré
Passat

Passat

Þægindi og lúxus sem þú venst fyrr en varir.

Þægindi og lúxus sem þú venst fyrr en varir.

Passat - aldrei meiri munaður


Nú getur þú endurskilgreint óskir þínar – Passat gerir líf þitt enn ánægjulegra. Passat er bíll sem býður upp á þægindi án málamiðlana svo ekkert skyggi á ánægjuna af akstrinum. Þess vegna hefur hvert einasta smáatriði í nýjum Passat verið endurhannað. Niðurstaðan er bíll sem setur ný viðmið með mikilli framsækni. Láttu þig hlakka til þess að njóta munaðar og þú verður fljótur að komast á bragðið.
+
Rafstýring og minni

Rafstýring og minni

Framsætin veita fullkomna afslöppun. Þau eru stillanleg á 12 vegu (valbúnaður) og eru með innbyggðum og stillanlegum mjóbaksstuðningi. Rafstýring er á lengdarstöðu sætanna, hæð og halla á sætisbaki og setu. Minnisbúnaður skráir persónulegar stillingar á sætunum og hliðarspeglunum í minni..

Hugvitssemi

Úthugsaður að öllu leyti. Þökk sé aragrúa af geymsluhólfum af ýmsum stærðum og formum er einfalt er að koma fyrir öllum persónulegum hlutum í bílnum svo auðvelt sé að finna þá aftur. Að framan er meira að segja pláss fyrir 1,5 lítra flösku og vegakort. Sérstök hirsla er jafnvel fyrir regnhlífina. Í hanskahólfinu er kælibúnaður sem sér um að halda drykkjunum vel kældum.
+
Hugvitssemi
+
Fullkomin hitastýring

Fullkomin hitastýring

Passat er búinn “Climatic” eða “Climatronic” loftfrískunarkerfunum. Síðarnefnda kerfinu er hægt að stýra aðgreindu fyrir hægri og vinstri helming innanrýmisins þökk sé tveggja svæða hitastýringu. Kerfið hefur líka óbeina stillingu og vinnur þá án loftstraums. Enn frekari kostur eru rafstýrðar sólhlífar fyrir aftari hliðarglugga sem veita aftursætisfarþegum vörn gegn sólargeislum.

Samskiptasérfræðingur


Valbúnaður er hátæknivætt, handfrjálst símkerfi með blátannartengingu sem alltaf tilbúið til notkunar. Hugvitssamleg útfærsla. Farsími ökumanns tengist símkerfinu þráðlaust og þess vegna er óþarft að taka hann upp úr jakkavasanum. Aðgerðum er stjórnað í gegnum símkerfi bílsins sem tengist inn á SIM-gögn farsímans. Til þess að virkja þennan möguleika verður farsíminn að styðja SIM Access Profile.
+
Hljóðlát vin

Hljóðlát vin

Hljóðeinangrun í Passat er framúrskarandi. Farþegarýmið er einangrað með skilvirkum hætti, hönnun yfirbyggingar og undirvagns var kerfisbundið miðuð við það að ná fram hæstu gildum í stöðugleika og hljóðeinangrun og sem minnstum titringi inn í farþgarýmið. Hallaðu þér aftur og njóttu afþreyingakerfisins í Passat. Aukahljóð í farþegarýminu af völdum vinds eða ójafns vegyfirborðs eru í algjöru lágmarki.

Hljóðupplifun

Dynaudio 10-rása hljómkerfi með geisladiskaskipti býður upp á hámarks hljómgæði. Kerfinu fylgja fjórir aflmiklir bassahátalarar, tvær miðjutíðnihátalarakeilur, sem er einstætt fyrir bíl í þessum flokki, og fjórir afar aflmiklir hátíðnihátalarar. Þetta ásamt 600 Watta afkastagetu gefur framúrskarandi bjarta hljóðupplifun sem svipar til hljómgæða í tónleikahöll.
+
Hljóðupplifun

Mikið rými


Passat er þekktur af yfirburða rými í farþegarýminu. Rýmishlutföllin í farþegarýminu eru sambærileg við bíla í stærri lúxusflokki sem helgast af þverstæðri vél og þar með auknu innanrými á öllum sviðum. Þetta nýtist öllum farþegum til meiri þæginda en stærðarhlutföllin koma enn betur í ljós þegar farangrinum er komið fyrir. Farangursrýmið tekur 565 lítra fullhlaðið sem er 90 lítrum meira en í fyrri gerð.
+
Þægilegt skottlok

Þægilegt skottlok

Skottlokið á Passat er einkar þægilegt í opnun þegar komið er úr verslunarferð eða þegar halda á í ferðalag. Mikil þægindi eru fólgin í því að hægt er að opna það með fjarstýringunni sem felur í sér að ekki þarf að leggja frá sér pinklana til þess að opna það.

Upplýstur


Heimreiðarlýsingin býður upp á öryggi og þægindi þegar farið er inn í bílinn eða hann yfirgefinn í myrkri. Með fjarstýringunni er heimreiðarlýsingin virkjuð ásamt innilýsingu sem lýsir upp svæðið í kringum bílinn og innanrýmið. Leiðin heim að dyrum er því alltaf vel upplýst.
© Volkswagen 2008IImprintILegal Statement