HeimIHafðu sambandIVeftré
Passat TSI EcoFuel.

Passat TSI EcoFuel.

Passat EcoFuel.

Passat EcoFuel.

+
Hámarks afköst, mikil gæði: Nýr Passat EcoFuel

Hámarks afköst, mikil gæði: Nýr Passat EcoFuel

Það eru til bifreiðar sem vekja athygli vegna nýjunga í tæknibúnaði og það eru til bifreiðar þar sem áherslan er á þægindabúnað eða sparneytni. En nú kemur nýr Passat TSI EcoFuel til sögunnar, sem sameinar alla þessa kosti og er auk þess með öflugan, vistvænan tvíbrennihreyfil. Þar er öryggi í hávegum haft og kröfur þínar að fullu virtar.

Kröfur um afl og hæfni

Áður óþekkt: fjöldaframleidd bifreið með tvíbrennihreyfli, sem sameinar afkastamikla forþjöpputækni (afgasforþjöppu og vélræna forþjöppu) og búnað til að brenna metani. Volkswagen er fyrsti framleiðandi í heimi sem býður slíka vél í sína bíla. 1.4 lítra TSI vélin afkastar 150 hestöflum, er með 220 Nm snúningsvægi og knýr bílinn í 213 km hámarkshraða. Með þessari vél eru í boði 6 gíra beinskiptur gírkassi eða 7 þrepa sjálfskipting (DSG) í samræmi við kröfur þínar um aksturseiginleika.

+
Kröfur um afl og hæfni
+
Kröfur um notagildi

Kröfur um notagildi

Með tvíbrennihreyflinum hefur Passat TSI EcoFuel langdrægi sem nemur 880 km, en fyrst og fremst er hugmyndin að nýta metan eins og kostur er. Þrjóti hins vegar metanið í akstri skiptir stjórnbúnaður vélarinnar sjálfksrafa yfir á bensínkerfið og án þess að nokkur truflun verði á gangi. Íslenskt metan er unnið úr hauggasi frá Sorpu bs, en fyrirtækið N1 annast sölu þess. Sölueiningar eru mældar í rúmmetrum en 1 m3 af metani jafngildir í orku 1,12 lítrum af 95 oktana bensíni. Áfyllingin fer fram undir þrýstingi og tekur svipaðan tíma og áfylling hefðbundins eldsneytis. 

Kröfur um hagkæmni og sparnað

Í hinum nýja Passat TSI EcoFuel felast miklir möguleikar til að spara fjármuni. Til dæmis er stofnkostnaður umtalsvert lægri en á sambærilegum Passat með bensínvél, vegna þess að ekkert vörugjald er lagt á metanbíla. Þá er eldsneytiskostnaður um 50% lægri á metani en 95 oktana bensíni, en eldsneytiseyðsla á hverja ekna 100 km er svipuð miðað við sambærilegar einingar.

+
Kröfur um hagkæmni og sparnað
+
Kröfur um verndun umhverfisins

Kröfur um verndun umhverfisins

Í samanburði við mengun frá útblæstri sambærilegs bíls með bensínhreyfli hefur Passat TSI EcoFuel afgerandi yfirburði. Hreint metan (CH4), unnið úr hauggasi, sem er að mestu leyti metan og koltvísýringur, verður nánast skaðlaust við bruna í bílhreyfli, því eftir sitja aðallega vatn og kolsýra.

Kröfur um öryggi

Niðurstöður úr árekstrarprófunum í Þýskalandi (TÜV) sýna ótvírætt að í umferðaróhöppunum stafar minni hætta af metanbúnaði bíla en hefðbundnum bensín/dísil búnaði. Styrkleiki metankerfisins er í samræmi við ýtrustu öryggiskröfur og háþrýstikerfið allt er háð eftirliti og viðurkenningu opinberra aðila (Umhverfisstofa/Vinnueftirlit). Reyndar er metan lofttegund sem er léttari en andrúmsloftið, með eðlisþyngdina 0,7 og algjörlega hættulaus. 

+
Kröfur um öryggi
Hvað er svona magnað við íslenskt metan?

Íslenskt metan eldsneyti verður til úr gróðurhúsalofttegundum sem myndast við gerjun lífræns úrgangs á urðunarstað SORPU bs. í Álfsnesi. Framleiðsla SORPU bs. kemur því í veg fyrir að óæskilegar gróðurhúsalofttegundir losni út í andrúmsloftið frá urðunarstað. Eftur tíu ára þróun er framleiðslan nú í hæsta gæðaflokki, með allt að 98% hreinleika. Með notkun á íslensku metani í stað bensíns og dísilolíu, stuðlar þú að umtalsvert minni losun gróðurhúsalofttegunda í tvennum skilningi; annars vegar með umhverfisvænni útblæstri í akstri og hins vegar með minni losun skaðlegra efna frá urðunarstað.

Segja má með sanni að nýting á íslensku metani við akstur hafi í för með sér mikil og jákvæð umhverfisáhrif og stuðli að hreinna andrúmslofti.
© Volkswagen 2008IImprintILegal Statement