HeimIHafðu sambandIVeftré
Passat Variant

Passat Variant

Fallegur og snilldarlega rúmgóður. Hönnunin.

Fallegur og snilldarlega rúmgóður. Hönnunin.

Glæsilegt útlit Passat Estate vísar leiðina til framtíðar. Skýr form og samræmi í útlínum fela í sér framsækni og tilfinningaríka nálgun. Heildaráhrifin eru ný vídd fangandi afls og glæsileika. Áhrif sem gefa fyrirheit um einstaka akstursupplifun strax við fyrstu sýn og áður en bílnum er ekið.
+
Máttur í útlitinu

Máttur í útlitinu

Heildarsvipurinn með kraftalegum framsvipnum ber með sér sportlegheit. Passat Estate er breiðari og virkar talsvert sportlegri en forverinn og það geislar af honum krafti og sjálfsöryggi. Það sópar að honum. Og það sem meira er þá er Passat Estate bíll sem stendur undir þeim væntingum sem útlit hans vekur.

Útlínur sem heilla

Kraftmikil hlutföll og nútímaleg hönnun gefa Passat Estate sannferðugt yfirbragð. Hver einasti þáttur hönnunarinnar stuðlar að mögnuðum heildaráhrifum. Bíllinn hefur fallega útlínumynd sem kveikir upp löngun til að snerta hann með höndunum.
+
Útlínur sem heilla
+
Framendi sem lýsir af

Framendi sem lýsir af

Fullkomið form er á framhluta Passat Estate. Það lýsir stolti og aðgreinanleika af framsæknum framsvip bílsins. Áberandi línur flæða niður með framhlutanum og mynda umgjörð um krómaða vatnskassahlífina, sem minnir helst á stílfærðan ættarskjöld.

Sportlegur þakbogi

Passat Variant Highline er auðþekkjanlegur af þakboga með rafhúðaðri silfuráferð. Svartur þakbogi er á öðrum búnaðarútfærslum sem undirstrikar sportlegt og kraftalegt útlit Passat Variant.
+
Sportlegur þakbogi
+
Skynjaðu veginn

Skynjaðu veginn

Felgurnar og dekkin vekja mikla eftirtekt. Skynjaðu veginn á 16 tommu “Milwaukee” eða 17 tommu “Le Mans”, “Macau”, “Monte Carlo” eða “Westwood” álfelgum með 235 dekkjum.

Stílfært umhverfi

Það ríkir fullkomin natni við hönnunina í innanrými Passat, alveg til smæstu smáatriða. Samspil vandaðra efna og sérvaldra skreytinga og ígreypinga undirstrika nútímalegt umhverfið. Fágaðir listar úr fægðri valhnotu, ösp eða Macassar-við skapa andrúmsloft munaðar og fágunar. Passat Estate Highline er með skreytilistum með burstaðri áláferð.
+
Stílfært umhverfi
+
Lýsandi hönnun

Lýsandi hönnun

Endingargóð LED afturljósin eru lykilþáttur í velheppnaðri útlitshönnun Passat Estate. Þau eru mjög sýnileg ökumönnum bíla sem á eftir koma og auka þar með líka öryggið.

Kraftalegur aftursvipur

Í kraftalegum afturendanum samtvinnast styrkur og fágun sem undirstrikar enn frekar sterka nærveru Passat Estate. Stór afturhlerinn er skreyttur með snyrtilegum krómlista. Í stuttu máli sagt þá er aftursvipurinn á Passat Estate afar sportlegur en um leið fágaður.
+
Kraftalegur aftursvipur
© Volkswagen 2008IImprintILegal Statement