Mikið afl, lítil eldsneytiseyðsla: Nýja TSI vélin
Meiri snerpa, minni eldsneytisþörf, minni koltvísýringur í útblæstri. Nýi 1.2 lítra TSI hreyfillinn í Polo er í öllu tilliti í fremstu röð. Með forþjöppu og strokkinnsprautun afkastar hann 77 kW (105 hö.) og knýr bílinn í 190 km hraða á klst. en eyðir þó aðeins 5.3 lítrum af eldsneyti að meðaltali á hverja 100 km. Auk þess nýtur umhverfið góðs af, þar sem magn CO2 í útblæstrinum er aðeins 124 gr./km. Til að byrja með verður þessi nýja vél fáanleg með 6 gíra beinskiptum gírkassa.