Touareg.
| Tækni og hönnun – TouaregSterk innkoma: Volkswagen kynnti nýja kynslóð Touareg á bílasýningunni í París í október, mánuði áður bíllinn kom á markað. Á þessari síðu er sérstök kynning á Touareg í tengslum við markaðssetninguna. |
Útlitsbreyting - minni loftmótstaðaTouareg hefur fengið andlitslyftingu eins og sjá má af nýrri, krómlagðri og skjaldarlaga vatnskassahlífinni sem nú er orðin vörumerki Volkswagen. Breytingin felur líka í sér nýtt útlit á framljósum og nú er hægt að fá bílinn með stefnuvirkum bi-xenon framljósum. Sömuleiðis eru komnir nýir hliðarspeglar á Touareg og vindkljúfur á þakið til þess að draga úr loftmótstöðu. | |
| Heimsfrumkynning á tækninýjungABSplus kerfið í Touareg, sem er þróað af Volkswagen sem hefur einkaleyfi fyrir því, er það fyrsta sinnar gerðar í heiminum. Kerfið skynjar laust vegyfirborð, eins og til dæmis sand eða möl og styttir hemlunarvegalengdina um allt að 20% með nýrri stjórnun á læsingu hemlanna. Rafeindastýrða stöðugleikastýringin (ESP) hefur sömuleiðis nýja virkni. Hún dregur úr veltu á yfirbyggingu í beygjum og byggir upp þrýsting í hemlunarkerfinu um leið og inngjöfinni er sleppt |
V8 FSI – nýjung í vélartækniTouareg er fyrsta Volkswagen bifreiðin sem státar af átta strokka bensínvél með beinni innsprautun. Í nýjum Touareg V8 FSI er að finna snilldarlega samtvinnun á yfirburða sparneytni og miklu afli, 350 hestöflum og hámarkstogi upp á 440 Nm (eldsneytiseyðsla: 13,8 l/100 km; CO2 útblástur: 329 g/km)*. Einnig eru þrjár díselvélar með forþjöppu og beinni innsprautun í boði í Touareg. Staðalbúnaður með þeim öllum eru sótagnasíur. Díselvélarnar afkasta, 174 (TDI), 225 (V6 TDI) og 313 hestöflum (V10 TDI). (Eldsneytiseyðsla: 10,1-12,6 l/100 km; CO2 úblástur: 267-333 g/km)* | |
| EyrnakonfektEngu til sparað í afþreyingu. Touareg er fyrsti jeppinn í heimi sem fáanlegur er með hljómkerfi frá dönsku sérfræðingunum hjá Dynaudio. Tíu vandlega samsettir hátíðnihátalarar, miðjuhátalarar og bassahátalarar eru keyrðir áfram af tíu rása magnara og skila stórum og tærum hljóm með 600 watta hljómafli. Fáanlegt er tengistjórnborð í miðjuarmhvíluna og er þá einfalt að tengja jaðartæki eins og til dæmis MP3-spilara við hljómtækin. |
*Í samræmi við tilskipun 1999/94/EC.
|