HeimIHafðu sambandIVeftré
Fjármögnun.

Fjármögnun.

Fjármögnun
Sérsniðnar lausnir.

Sérsniðnar lausnir.

Allt að 70% fjármögnun í boði


Fjármögnunarfyrirtæki og tryggingarfélög aðstoða kaupendur við að fjármagna kaup á nýjum bíl. Fjármögnun getur numið allt að 70% af kaupverði bifreiðar. Þær leiðir sem standa einstaklingum til boða eru m.a. bílalán og bílasamningar. Kaupandi er skráður eigandi bifreiðar ef um bílalán er að ræða. Tekið er veð í bifreið og er bifreiðin húftryggð á lánstímanum. Fjármögnunarfyrirtækið er skráður eigandi bifreiðar ef um bílasamning er að ræða en lántakandi er skráður umráðamaður bifreiðar á samningstíma.

Ýmsar fjármögnunarleiðir í boði


Ýmsar fjármögnunarleiðir standa fyrirtækjum og rekstraraðilum til boða. Fjármögnun getur numið allt að 70% af kaupverði bifreiðar. Þær fjármögnunarleiðir sem standa atvinnurekendum til boða eru m.a. bílalán, kaupleiga og eignarleiga. Möguleiki er einnig á rekstrarleigu.
Eftirtalin fyrirtæki bjóða fjármögnun á bílum og atvinnutækjum
© Volkswagen 2008IImprintILegal Statement