HeimIHafðu sambandIVeftré
Langtímaþjónusta.

Langtímaþjónusta.

Vélarolía með aukna smurhæfni.

Vélarolía með aukna smurhæfni.

Langtímaþjónusta - vélarolía með aukna smurhæfni


Volkswagen samsteypan hefur þróað svokallaða langtímaþjónustu fyrir sína framleiðsu, en það er kerfi sem gerir kleift að lækka mjög tíðni á smurnings- og eftirlitsþjónustu viðkomandi bifreiða.

Það sem gerir þetta mögulegt er notkun langtímaolíu, sem hefur stóraukna smurhæfni, og rafrænt eftirlitskerfi, sem er innbyggt í vélbúnað bifreiðarinnar og gefur sjálfvirkt til kynna smurhæfni olíunnar og lágmark olíumagns með ljósmerkjagjöf/texta á skjá aksturstölvu. Með þessu móti fækkar heimsóknum vegna þjónustuaðgerða, rekstrarkostnaður lækkar og álag á umhverfið minnkar vegna minna magns úrgangsolíu. Á hinn bóginn er lögð aukin skylda á herðar ökumanni, að hann fylgist vel með merkjagjöf frá hinu rafræna eftirlitskerfi og bregðist við í samræmi við það. Að öðru leyti er þjónustukerfið bæði tímatengt og tengt akstri bílins í kílómetrum samkvæmt eftirfarandi, og ber að fara eftir því sem aðalreglu:

Smurþjónustu skal framkvæma þegar áminning birtist í mælaborði (sjá skýringamynd lengst til hægri). Þessi áminning birtist á 15.000 - 30.000 km fresti eða á 24ra mánaða fresti, hafi þeim kílómetrafjölda ekki verið náð.

Þjónustuskoðanir skal framkvæma við hverja 30.000 km., en þó aldrei sjaldnar en á 24 mánaða fresti.

Olíuhæðarljósinu er ætlað að vara ökumann við ef of lítil olía er á vélinni. Þá kviknar gult ljós. Sé vélarhlífin opnuð eftir að olíuviðvörunarljós kviknar, gerir viðvörunarbúnaðurinn ráð fyrir að olíu hafi verið bætt á vélina og því afturkallar hann viðvörun vegna of lítillar olíu.

Hafi olíu hinsvegar ekki verið bætt á, greinir viðvörunarbúnaður að of lítil olía sé á vélinni innan u.þ.b. 100 km aksturs og kveikir olíuviðvörunarljósið á ný.

Ef nauðsynlegt reynist að bæta á smurolíu, t.d. þegar viðvörunarljós um olíuhæð gefur til kynna að of lítil olía sé á vélinni, skal nota langtímaolíu. Ef hún fæst hins vegar ekki, má bæta að hámarki hálfum lítra af venjulegri 502.00 smurolíu á bensínvélar og 505.00 á dísilvélar. Þetta má einungis gera í neyðartilvikum ef halda verður för áfram.

Þegar notast er við smurolíur sem ekki uppfylla staðla Volkswagen um lengt tímabil milli þjónustuskoðana, er ekki hægt að ábyrgjast sveigjanleg þjónustutímabil.

Með bílnum fylgir í upphafi brúsi með langtímaolíu. Allir brunahreyflar eyða smurolíu, sem getur verið allt að 1 lítri á 1000 km.

Með langtíma smurolíunni er tekin ábyrgð á betri vélarvernd með lengri notkunartíma. Þessi sérstaka hágæðaolía stuðlar einnig að minni eldsneytiseyðslu.

  • Hlífum umhverfinu.
  • Skilum notaðri olíu til olíumóttökustöðvar.
  • Hellum ekki olíu í niðurföll, jarðveg eða vatnaumhverfi af neinu tagi.
© Volkswagen 2008IImprintILegal Statement