Ábyrgðin fellur úr gildi að fullu: Ef gert hefur verið við bifreiðina á ábyrgðartíma af aðila, sem ekki er viðurkenndur af HEKLU. Ef notaðir hafa verið varahlutir í bifreiðina á ábyrgðartíma, sem ekki eru viðurkenndir af HEKLU. Ef ekki hefur verið fylgt fyrirmælum framleiðanda bifreiðarinnar í eiganda- og þjónustuhandbók. Ef bifreiðinni hefur í einhverju verið breytt frá upprunalegu ástandi, og rekja má meintan galla til þeirrar breytingar. Ef bifreiðin hefur orðið fyrir tjóni og/eða hefur verið skráð sem tjónabifreið.