|
|
Ábyrgðarskilmálar.
| HEKLA hf., Laugavegi 172-174, Reykjavík, fyrir hönd Volkswagen verksmiðjanna í Þýskalandi, ábyrgist hérnefnda bifreið, einstaka hluta hennar og hlutasamstæður gagnvart framleiðslugöllum er í ljós kunna að koma á ábyrgðartímanum, skv. nánari skilmálum í ábyrgðarskírteini þessu. Ábyrgðin tekur gildi um leið og fyrsti kaupandi tekur við bifreiðinni af seljanda, eða umboðsmanni hans, og hefur undirritað ábyrgðarskírteini, og varir í 2 ár frá þeim degi. |
Undantekningar frá ofangreindum skilmálum eru sem hér segir, en nánari upplýsingar gefur HEKLA og umboðsmenn um land allt. Framleiðendur eða umboðsmenn hérlendis fyrir eftirfarandi hluti taka sjálfir á sig ábyrgð vegna þeirra: Hjólbarðar, hljómtæki, þjófavörn og fjarstýringar hvers konar, rafgeymar, loftfrískunarbúnaður og annað, sem hvorki hefur verið sett í bifreiðina hjá framleiðanda hennar né HEKLU. | |
| Endurnýjun á eftirtöldum hlutum telst eðlilegur viðhaldskostnaður og nær ábyrgðin því ekki til þeirra nema annað komi til: Loftsía, olíusía, eldsneytissía, viftureim, rafkerti, borðar á tengslisdiski, hemlaborðar, hemlaklossar, hemlaskálar, hemladiskar, þurrkublöð. Öll þétti og pakkningar, fóðringar og ásþétti, öryggi, ljósaperur, burstakol í rafhreyfli, allar olíur og feiti, frostlögur, rafgeymissýra, ísvari og eldsneyti. |
VW ábyrgist yfirbyggingu bifreiðarinnar gagnvart gegnumryðgun í 10 ár með þeim skilyrðum, sem sett eru í ábyrgðarskilmálum þessum og með eftirfarandi undantekningum: Tæring vegna skemmda af völdum óhappa, misnotkunar eða breytinga á bifreiðinni. Kemísk efnamengun, fugladrit, súrt regn, snjóhagl, umferðaróhöpp, sandfok, saltmengun, afísunarefni, grjótkast, eldsvoði, mannleg mistök, vanræksla, óeirðir eða náttúruhamfarir. Tæring vegna vanrækslu á að lagfæra minniháttar skemmdir. Tæring, sem rekja má til þess, að ekki hefur verið farið eftir fyrirmælum í þjónustuhandbók. | |
| Ábyrgðin tekur hvorki til eðlilegs slits á bifreiðinni né skemmda, sem kunna að verða vegna óhappatilvika, misnotkunar, vanrækslu í meðferð eða við afbrigðilega notkun, svo sem í kappakstri, akstri utan vega o.fl. Ábyrgð gagnvart skrölti og öðrum hávaða í innréttingu og yfirbyggingu er takmörkuð. Þá fellur eðlileg rýrnun, upplitun og aflögun utan ábyrgðarinnar, enda miðast ofangreint ávallt við notkun bifreiðarinnar. |
Ábyrgðin bætir einungis beinan kostnað (beint tjón) eiganda af viðgerð og/eða endurnýjun á hinu gallaða samkvæmt framvísuðum reikningi frá bifreiðaverkstæði, sem HEKLA hefur viðurkennt. Komi fram meintur framleiðslugalli á bifreiðinni, ber eiganda hennar að tilkynna það HEKLU án tafar eða næsta umboðsmanni fyrirtækisins og framvísa ábyrgðarskírteini um leið. Dráttur á að tilkynna meintan galla getur valdið ógildingu ábyrgðar. | |
|