ID.4 GTX með tveimur mótorum og aldrifi
Sjálfbær akstursánægja
Frá 0 upp í 100 km/klst. á um 6,2 sekúndum, enginn útblástur CO2 – á nýjum ID.4 GTX þarft þú ekki lengur að gera málamiðlanir varðandi sjálfbæran akstur. Upplifðu sportleg afköst í tveggja véla ID.4, með drif á fjórum hjólum, fullrafdrifinn með gott drægni. Nýr ID.4 GTX: Eins sportlegur og GTI, jafnþægilegur og sportjeppi og eins sjálfbær og ID.
Tveir mótorar og aldrif
Fyrir alla sem njóta frísklegrar ferðar í hvaða veðri sem er.
Tveir mótorar og aldrif
Fyrir alla sem njóta frísklegrar ferðar í hvaða veðri sem er.
Rafafl mætir sérstakri hönnun
Tækjabúnaður
Akstursánægja af sportjeppa
Fær á hvaða undirlagi sem er: Aldrifið í ID.4 GTX með tveimur mótorum kemur þér þangað sem þú þarft. Það samanstendur af tveimur rafmótorum sem hvor um sig knýja afturhjólin og framhjólin í gegnum fyrsta gír. Ólíkt því sem tíðkast í hefðbundnu aldrifi þá er engin vélræn tenging á milli öxlanna. Í stillingunni „Traction“ fæst frábært grip og aukin stýring á akreinum jafnvel þó að undirlagið sé laust í sér eða hált.
Hönnun
Einstaklega sportlegur
Nýr ID.4 GTX sýnir hvað rafbílar geta verið hrífandi: Framúrstefnulegar 20 tommu álfelgur í GTX sérútliti, svart þak með sérkennum ID.4, svartir þakbogar og svart, háglansandi grill. Þakburðarvirkið og C-stafurinn eru með gljákolalitri áferð. Ljósaborði milli aðalljósanna og Volkswagen merkisins er einn hápunkturinn. Stafirnir GTX að framan og á skottinu og dreifarinn í málmgráum lit. Allt gefur þetta ID.4 sterklegt yfirbragð. Allt er þetta staðalbúnaður.
Sjáðu ID.4 GTX með eigin augum
Sjáðu ID.4 GTX með eigin augum
Hleðsla og drægni
Tekur þig lengra
Þægilegur akstur í vinnuna á morgnana eftir ferð í ræktina og beint út úr bænum eftir vinnu í helgarferð, hlaðinn útbúnaði – þetta er ekki vandamál með ID.4 GTX. Þú ert með rafhlöðu með 77 kWst getu og viðskiptavinavæna drægni frá 340 upp í 480 km.
Þægindi
Upplýst samskipti
Með því að nota ID. Light getur ID.4 GTX átt sjónræn samskipti og þegar hann er tengdur leiðsögukerfinu leiðir hann þig áhyggjulaust í gegnum umferðina. Hann tekur vel á móti þér og breytir leiðbeiningum frá upplýsinga- og afþreyingakerfinu og aðstoðarkerfunum í ljósmerki sem beina þér auðveldlega í gegnum umferðina. Um leið og þú notar raddstýringuna bregst ID. Light við röddinni í þér. Og þegar þú stígur út úr bílnum kveður ID. Light þig – með ljósmerkjum.