Akstur í Golf R er öflug upplifun.

Upphafsskjámyndin með R merkinu passar mjög vel við heildaryfirbragð bílsins ásamt leðurklædda gírstangarhnúðinum sem skartar álfestingum og kristalgráum saumi.

Þú getur fengið hraðar gírskiptingar með leðurklædda fjölnota sportstýrinu sem skartar sérstöku R-útliti þegar þú velur skiptingu með DSG gírkassanum með tvöfaldri kúplingu. Þú þarft bara að nota flipana og það geturðu án þess að taka hendurnar af stýrinu.

Akstur í Golf R er öflug upplifun. Hágæðasportsætin, sem eru staðalbúnaður, gera þér kleift að sitja þægilega og þau bjóða upp á traustan hliðarstuðning. Þau eru mjög sportleg á að líta og veita aukið öryggi á veginum. Framsætin eru klædd Race áklæðum með Alcantara leðri á hliðunum og kristalgráum saumi. Það er einnig hægt að fá leðuráklæði á sportsætin. Höfuðpúðarnir og sætishliðarnar eru kolsvartar og R-merkið prýðir sætisbakið. Miðflötur sætisins er fáanlegur í gljákolalit og gráum lit.