Ábyrgð

Ábyrgðarskilmálar

Frá október 2016 fylgir öllum nýjum fólksbílum Volkswagen fimm ára ábyrgð. Forsendur fyrir því að ábyrgð gildi er að bíllinn sé þjónustaður af viðurkenndum þjónustuaðila.

Viðgerðir og þjónustuskoðanir

HEKLA hf., Laugavegi 174, Reykjavík, fyrir hönd Volkswagen, ábyrgist hina seldu bifreið, einstaka hluta hennar og hlutasamstæður (en: components) gagnvart efnis- og framleiðslugöllum er í ljós kunna að koma á ábyrgðartímanum, skv. nánari skilmálum í ábyrgðarskírteini þessu. Ábyrgðin tekur gildi á nýskráningardegi og varir í 24 mánuði frá þeim degi án aksturstakmarkana.

Að auki fylgir bifreiðinni skilyrt framlengd ábyrgð sem gildir til 60 mánaða aldurs frá skráningardegi, eða 100.000 km aksturs, hvort sem fyrr kemur. Hin framlengda ábyrgð nær til galla sem upp kunna að koma í bílnum að lakki undanskildu. Forsendur fyrir því að ábyrgðarframlengingin gildi er að bíllinn sé þjónustaður af viðurkenndum þjónustuaðila. Viðurkenndur þjónustuaðili er verkstæði sem stenst staðla Volkswagen.

Ábyrgð á aðal rafhlöðum rafknúinna bifreiða (en: Electric Vehicle / e-mobility) og blendingsbifreiða með bruna- og rafhreyfli (en: Plug-In-Hybrid) er til 8 ára/160 þús. km. (hvort sem kemur fyrst).

Skilyrt ábyrgð til 36 mánaða er á göllum í lakki og/eða undirvinnu þess. Skilyrðin eru þau að í hverri þjónustuheimsókn er ástand lakksins skoðað og niðurstaða þeirrar skoðunar bókuð. Ráðlegging um nauðsynlegar viðgerðir eru settar fram ef við á.

Ábyrgðin bætir einungis viðgerðarkostnað (endurheimt fyrra ástands) og mögulegan flutning bifreiðar á þjónustuverkstæði sem HEKLA hefur viðurkennt, sé bilun þess eðlis að ekki sé unnt að aka bifreiðinni. Komi fram bilun á bifreiðinni á ábyrgðartímanum ber eiganda hennar að tilkynna það HEKLU eða næsta viðurkennda þjónustuaðila án tafar. Dráttur á að tilkynna bilun/meintan galla getur valdið frekari skaða og/eða ógildingu ábyrgðar á biluninni/gallanum.

Framleiðendur ábyrgjast yfirbyggingu bifreiðarinnar gagnvart gegnumryðgun í 12 ár með þeim skilyrðum, sem sett eru í ábyrgðarskilmálum þessum. Gegnumryðgun er skemmd af völdum ryðs sem byrjar á innri hlið yfirbyggingar og endar með sýnilegri skemmd eða gati á ytri hlið.

Undantekningar

Undantekningar frá ofangreindum skilmálum eru sem hér segir, en nánari upplýsingar gefur HEKLA og viðurkenndir þjónustuaðilar:

  1. Búnaður sem hvorki hefur verið settur í bifreiðina hjá Volkswagen né HEKLU er ekki í ábyrgð hjá framleiðanda.
  2. Ekki er tekin ábyrgð á skemmdum af völdum eftirtalinna atriða:
    1. Tæring vegna skemmda af völdum óhappa, vanrækslu, misnotkunar eða breytinga á bifreiðinni.
    2. Skemmdir / tæring / hrörnun af völdum efnamengunar, fugladrits, súrs regns, snjóhagls, umferðaróhappa, sandfoks, saltmengunar, afísunarefna, grjótkasts, eldsvoða, mannlegra mistaka.
    3. Skemmdir af völdum óeirða eða náttúruhamfara.
    4. Tæring og / eða flögnun lakks vegna vanrækslu á þrifum og lakkvörn (bón)
    5. Vanræksla á að lagfæra minniháttar skemmdir í lakki.
    6. Skemmdir / tæring / hrörnun / bilanir, sem rekja má til þess, að ekki hefur verið farið eftir fyrirmælum í eigandahandbók (en: Owner‘s Manual).
  3. Ábyrgðin tekur hvorki til eðlilegs slits á bifreiðinni né skemmda, sem kunna að verða vegna óhappatilvika, misnotkunar, vanrækslu í meðferð eða við afbrigðilega notkun, svo sem í kappakstri, akstri utan vega o.fl. þess háttar.
  4. Bilanir / afleiðingar af völdum rangs eldsneytis sem sett er á bifreiðna. Athugið að notkun á BioDiesel eldsneyti á dieselhreyfla getur valdið skemmdum sé það notað í sterkara blöndunarhlutfalli en getið er um í staðlinum EN 590 sem lýsir eiginleikum diesel eldsneytis sem selt er á Íslandi, Noregi, Sviss og í löndum Evrópusambandsins. 
  5. Endurnýjun á eftirtöldum hlutum telst eðlilegur viðhaldskostnaður og nær ábyrgðin því ekki til þeirra að öllu leyti nema um sé að ræða staðfestan framleiðslugalla:
    1. Loftsía, olíusía, eldsneytissía, viftureim, rafkerti, borðar á tengslisdisk(um).
    2. Hemlaborðar, hemlaklossar, hemlaskálar, hemladiskar, þurrkublöð.
    3. Öryggi, ljósaperur, allar olíur og eldsneyti.
    4. Dekk.
  6. Ábyrgð gagnvart skrölti og öðrum hávaða í innréttingu og yfirbyggingu er takmörkuð. Þá fellur eðlileg rýrnun, upplitun og aflögun utan ábyrgðarinnar, enda miðast ofangreint ávallt við notkun bifreiðarinnar. Ábyrgð er á hjólastillingu og stillingum hurða í 6 mánuði.

Skyldur kaupanda og takmarkanir á ábyrgð seljanda:

Til þess að viðhalda ábyrgð bifreiðarinnar er kaupanda skylt að færa hana reglulega til þjónustueftirlits hjá viðurkenndum þjónustuaðila sem þjónustar bílinn samkvæmt fyrirmælum sem gefin eru í þjónustubókinni (en: Service Schedule) sem fylgir bílnum. Þjónustuaðgerðir viðurkennds þjónustuaðila eru skráðar í gagnagrunn Volkswagen, „Digital Service Schedule“.

Afbrigðileg notkun

Við afbrigðilega notkun getur verið nauðsynlegt að líta eftir vissum þáttum með skemmra millibili en sýnt er í þjónustuhandbókinni, t.d. loftsíu, tímareim, olíur og sótagnasíu. Brýnt er að allt eftirlit, einnig smureftirlit, sé í höndum vottaðs Volkswagen þjónustuaðila sem hefur yfir réttum upplýsingum og réttum tækjabúnaði að ráða. Seljandi áskilur sér rétt til að hafna bótakröfum ef þessu atriði er ekki fullnægt.

Með afbrigðilegri notkun er átt við eftirfarandi:

  • Akstur í miklu ryki eða lofti mettuðu mikilli sjávarseltu.
  • Akstur á mjög ósléttum vegum eða utan vega.
  • Akstur í vatni.
  • Akstur á mjög stuttum vegalengdum eða akstur í miklum kulda.
  • Langvarandi lausagang hreyfils án þess að bifreiðinni sé ekið.
  • Akstur með of þungan hengi- / dráttarvagn eða of mikinn hlassþunga.
  • Kappakstur og annar áhættuakstur.

Hvað má bjóða þér að gera næst?

Hvað má bjóða þér að gera næst?