Takata loftpúðar öryggis innköllun
Alþjóðleg innköllun vegna mögulegrar hættu á banvænum meiðslum af völdum loftpúða með ammoníumnítrat-drifefni, framleiddum af fyrirtækinu Takata, nær einnig til Volkswagen-ökutækja. Hér getur þú athugað hvort ökutækið þitt sé með opna innköllun og haft samband við næsta viðurkennda söluaðila ef þú hefur einhverjar spurningar.
Hér getur þú slegið inn VIN-númer og kannað hvort það sé opin innköllun
Hvað er VIN og hvernig finn ég það?
VIN (verksmiðjunúmer ökutækis) er auðkennisnúmer ökutækis sem er búið til samkvæmt alþjóðlegum stöðlum. 17 stafa talan er skráð í skjölum bílsins og neðst á framrúðunni. Einnig er hægt að sjá verksmiðjunúmer á síðu Samgöngustofu með því að slá inn skráningarnúmer
Þarftu hjálp við að finna VIN-númerið þitt? Þjónustuaðilar okkar eru ávallt reiðubúnir að aðstoða þig.
Hvað þarf ég að gera?
Ef bíllinn þinn fellur undir innköllunina skaltu hafa tafarlaust samband við þjónustuaðila Volkswagen svo hægt sé að gera ráðstafanir til að skipta um viðkomandi íhluti við fyrsta tækifæri. Verkið tekur um klukkustund og er þér að kostnaðarlausu.
Vinsamlegast upplýstu einnig aðra eigendur eða notendur ökutækisins um innköllunina og gættu þess að benda á hana við sölu ökutækisins.