Volkswagen-öpp, innskráning og verslun
Hvort sem þú ert heima hjá þér eða á ferðinni – með Volkswagen-öppum og stafrænum kerfum hefur þú alltaf aðgang að nytsamlegum eiginleikum og þjónustu fyrir bílinn þinn. Í boði eru mismunandi öpp og kerfi:
Volkswagen-appið
Aðalappið fyrir bílinn þinn: Tengstu bílnum í gegnum netið og stjórnaðu ýmiss konar aðgerðum beint í farsímanum.
VW Connect-verslunin
Bættu við þjónustu og eiginleikum fyrir Volkswagen-bílinn þinn með sveigjanlegum hætti. VW Connect-verslunin er aðgengileg á vefnum í margs konar tækjum og vöfrum. Pantanir þínar eru tengdar beint við bílinn þinn.
In-Car-netverslun
Ítarleg útgáfa VW Connect-verslunarinnar – aðgengileg beint í bílnum. Hér getur þú kynnt þér frekari stafræna viðbótareiginleika og hlaðið þeim niður á einfaldan hátt í upplýsinga- og afþreyingarkerfinu.
myVolkswagen
Hér getur þú haldið utan um allar helstu upplýsingar og þjónustu fyrir bílinn þinn á einum og sama stað.
Fleiri öpp
Auk þess býður Volkswagen upp á fjölda appa til viðbótar fyrir farsíma sem auðvelda þér lífið.
Volkswagen-appið
Volkswagen Connect-verslunin
In-Car-netverslun
myVolkswagen
Fleiri öpp. Enn meiri möguleikar.
Kynntu þér nytsamleg öpp fyrir farsímann sem bjóða upp á viðbótareiginleika fyrir Volkswagen-bílinn þinn (allt eftir bílgerð og hugbúnaðarútgáfu). Hér er meðal annars um að ræða stuðning fyrir tilteknar bílastæðaaðgerðir, þægilega stjórnun aðgerða fyrir hljóð- og myndefni eða gagnlegar viðbætur fyrir leiðsögn og skipulagningu akstursleiða.*
*Það hvaða eiginleikar eru í boði fer eftir bílnum, útbúnaði hans og uppsettum hugbúnaði hverju sinni.