Volkswagen-öpp, innskráning og verslun

Hvort sem þú ert heima hjá þér eða á ferðinni – með Volkswagen-öppum og stafrænum kerfum hefur þú alltaf aðgang að nytsamlegum eiginleikum og þjónustu fyrir bílinn þinn. Í boði eru mismunandi öpp og kerfi:

Volkswagen-appið
Aðalappið fyrir bílinn þinn: Tengstu bílnum í gegnum netið og stjórnaðu ýmiss konar aðgerðum beint í farsímanum.

VW Connect-verslunin

Bættu við þjónustu og eiginleikum fyrir Volkswagen-bílinn þinn með sveigjanlegum hætti. VW Connect-verslunin er aðgengileg á vefnum í margs konar tækjum og vöfrum. Pantanir þínar eru tengdar beint við bílinn þinn.

In-Car-netverslun
Ítarleg útgáfa VW Connect-verslunarinnar – aðgengileg beint í bílnum. Hér getur þú kynnt þér frekari stafræna viðbótareiginleika og hlaðið þeim niður á einfaldan hátt í upplýsinga- og afþreyingarkerfinu.

myVolkswagen
Hér getur þú haldið utan um allar helstu upplýsingar og þjónustu fyrir bílinn þinn á einum og sama stað.

Fleiri öpp

Auk þess býður Volkswagen upp á fjölda appa til viðbótar fyrir farsíma sem auðvelda þér lífið.

Volkswagen-appið

Alltaf góð yfirsýn, alls staðar

Kona horfir á farsíma. Í bakgrunni sést rauður Volkswagen. Hægra megin sjást merki App Store og Google Play Store og QR-kóði sem vísar þangað.

Með Volkswagen-appinu hefur þú þægilegan aðgang að stafrænum þjónustum fyrir Volkswagen-bílinn þinn. Nota verður appið til þess að virkja þjónusturnar og nettengja bílinn. Með appinu hefur þú aðgang að þjónustum VW Connect, We Connect eða Car-Net og getur meðal annars skipulagt akstursleið og athugað stöðuna á bílnum. Með We Charge getur þú auk þess hlaðið og borgað með þægilegum hætti þegar þú ert á ferðinni.

Volkswagen Connect-verslunin

Kynntu þér þjónustu, öpp og eiginleika á þægilegan hátt og virkjaðu beint

Í Volkswagen Connect-versluninni finnur þú hagnýtar þjónustur, ný öpp og viðbótareiginleika fyrir bílinn þinn. Hægt er að bæta við fyrirliggjandi þjónustu á einfaldan hátt eða opna fyrir nýja möguleika.

In-Car-netverslun

Verslunin fyrir upplýsinga- og afþreyingarkerfið

Skjár upplýsinga- og afþreyingarkerfisins með opinni upphafssíðu og mismunandi öppum.
1
  1. 1.
    Allt eftir hugbúnaðarútgáfu kann myndin að vera frábrugðin ástandi við afhendingu.

Við bjóðum upp á mikið úrval appa og stafrænnar þjónustu beint í bílnum – allt frá afþreyingu til leiðsagnar og hagnýtra hjálparhella.

Auk appa frá Volkswagen eru hér einnig í boði margs konar forrit frá þriðju aðilum. Þau eru eingöngu fáanleg í In-Car-netversluninni og bæta sérstökum eiginleikum fyrir bílinn við úrvalið í VW Connect-versluninni. Sumar þjónusturnar krefjast virkrar gagnatengingar. Hægt er að nota gagnapakka frá ytri farsímafyrirtækjum í þessum tilgangi – á einfaldan og þægilegan hátt beint í bílnum.

myVolkswagen 

Allt það helsta á einum stað

myVolkswagen er vefgátt fyrir viðskiptavini Volkswagen og miðlægur tengipunktur fyrir ID-bílinn þinn. Hér getur þú haldið utan um prófílinn þinn, athugað stöðuna á bílnum, haldið yfirsýn yfir samninga og áskriftir og fengið aðgang að stafrænum viðbótareiginleikum.

Fleiri öpp. Enn meiri möguleikar.

Kynntu þér nytsamleg öpp fyrir farsímann sem bjóða upp á viðbótareiginleika fyrir Volkswagen-bílinn þinn (allt eftir bílgerð og hugbúnaðarútgáfu). Hér er meðal annars um að ræða stuðning fyrir tilteknar bílastæðaaðgerðir, þægilega stjórnun aðgerða fyrir hljóð- og myndefni eða gagnlegar viðbætur fyrir leiðsögn og skipulagningu akstursleiða.*

*Það hvaða eiginleikar eru í boði fer eftir bílnum, útbúnaði hans og uppsettum hugbúnaði hverju sinni.

  • Tákn fyrir appið VW Park Assist Pro.

    Volkswagen Park Assist Pro

    Park Assist Pro greinir hentug bílastæði með skynjurum bílsins þegar ekið er hjá. Kerfið aðstoðar þig síðan við að leggja í stæðið og fara úr því. Þú hefur alltaf yfirsýn yfir ferlið og getur gripið inn í þegar á þarf að halda.*

    Með réttu appi í farsímanum getur þú meira að segja sett bílastæðaaðgerðir í gang eða stöðvað þær utan bílsins, sem getur komið sér vel þegar leggja þarf í þröng stæði.

    *Það hvaða eiginleikar eru í boði fer eftir bílnum, útbúnaði hans og uppsettum hugbúnaði hverju sinni.

    Sækja í App StoreOpna ytri hlekk

    Sækja í Google PlayOpna ytri hlekk

  • Tákn fyrir appið Volkswagen maps + more.

    maps + more

    Sérsniðið: Appið Volkswagen maps + more (fyrir iOS og Android) er þróað sérstaklega fyrir up! og e-up! og gerir farsímann þinn að hluta upplýsinga- og afþreyingarkerfisins í bílnum. Meðal annars er hægt að sýna mælaborðið í appinu, spila tónlist úr símanum, stjórna útvarpinu, nota leiðsögukerfi með tví- og þrívíðum kortum án nettengingar og leita að áfangastöðum og útvarpsstöðvum með handskriftargreiningu. Einnig er hægt að nota handskriftargreiningu til að leita í símaskránni, símtalalistum og tónlistarskrám.

    Sækja í App StoreOpna ytri hlekk

    Sækja í Google PlayOpna ytri hlekk

Þú gætir líka haft áhuga á þessu