Með þessum pakka virkjar þú leiðsögukerfið einfaldlega síðar – með nýjustu umferðarupplýsingum og áfangastöðum.
Með eiginleikanum fyrir rafakstursleiðir í leiðsögukerfinu er hægt að skipuleggja hleðslustopp á leiðinni sjálfkrafa. Í tengslum við netþjónustur VW Connect Plus færðu síðan reglulegar kortauppfærslur og umferðarupplýsingar fyrir alla Evrópu.
Upgrade-eiginleikinn1 Air Care Climatronic bætir þriggja svæða hitastýringu við loftkælinguna. Þannig er hægt að stilla á þægilegt hitastig með aðskildum hætti fyrir ökumann, framsætisfarþega og farþega í aftursæti.
Aðeins þarf að ýta á hnapp til að fá þægilegan yl í stýrið. Hægt er að kveikja á eiginleikanum með aðgerðastýrinu – eða beint í Volkswagen-appinu: Þegar þú leggur af stað er stýrið í ID.-bílnum þínum orðið þægilega hlýtt og fer vel í hendi – sem sér til þess að þú hefur betri stjórn á bílnum.
Vírlaus upphitun framrúðunnar sér til þess að þú þarft ekki að fjarlægja ísingu af rúðunni og kemur í veg fyrir að það myndist móða á henni. Auk þess eru rúðuþurrkurnar hitaðar upp í hvíldarstöðu. Þannig er komið í veg fyrir að þurrkublöðin frjósi föst og séð til þess að þau séu alltaf tilbúin til notkunar. Á sumrin veitir sérstök húð á framrúðunni vörn gegn geislum sólar og sér til þess að hitastigið í innanrýminu haldist þægilegt.
Auk þess er hægt að kveikja á loftræstingunni áður en ekið er af stað – ýmist sjálfkrafa með stillingu eða í Volkswagen-appinu.
Í ID.7 þarftu ekki lengur að nota hleðslusnúru: Þú leggur farsímann einfaldlega í geymsluhólfið að framan þar sem hann er hlaðinn þráðlaust (með Qi-stuðningi). Um leið getur þú notað símann með þægilegum og öruggum hætti meðan á akstrinum stendur.