Með myndavélakerfinu Area View aðstoðar ID.7 þig við að athafna þig með bílnum í bænum, í bílastæðahúsum og á svæðum sem erfitt er að fara um: fjórar myndavélar gefa þér yfirsýn yfir umhverfi bílsins á skjá upplýsinga- og afþreyingarkerfisins – svo þú sjáir alltaf vel yfir kantsteina og bílastæðamerkingar. Með Area View getur þú meira að segja séð fyrir horn: Hjálparlínur á skjánum hjálpa þér að meta fjarlægðir og sýna þér beygjustefnuna miðað við stöðu stýrisins.
Áttu langa leið fyrir höndum? Travel Assist með Emergency Assist getur haldið bílnum á akreininni, haldið bílnum innan þess hámarkshraða sem stillt er á og haldið tiltekinni fjarlægð frá næsta bíl á undan. Viltu skipta um akrein á hraðbrautinni? Travel Assist aðstoðar þig einnig við það.
Ef þú lendir í vandræðum eða neyðartilviki í akstri ertu með Emergency Assist þér við hlið. Ef þú ert ekki lengur fær um að stýra bílnum getur kerfið gripið inn í með markvissum hætti. Emergency Assist reynir fyrst að fá þig til að bregðast við. Ef það tekst ekki gerir kerfið ráðstafanir til að koma bílnum í öruggar aðstæður. Er ekki gott að vita til þess?
Með bílastæðaaðstoðinni Park Assist Plus hjálpar ID.7 þér ekki aðeins að finna laust stæði, heldur leggur hann sjálfkrafa í stæðið fyrir þig:
Þegar bílastæðaaðstoðin er virkjuð leitar hún að lausum stæðum umhverfis bílinn – á hraða allt að 40 km/klst. leitar hún að stæðum sem liggja langsum og á hraða allt að 20 km/klst. leitar hún einnig að stæðum sem liggja þversum. Þegar þú ert búin(n) að velja laust stæði sem kerfið stingur upp á getur þú látið bílinn sjá um að leggja sjálfkrafa í það.
Park Assist Plus kemur einnig í góðar þarfir þegar ekið er af stað: Kerfið getur farið sjálfkrafa með ID.7 úr stæðum sem liggja langsum.
Og ef þér skyldi mistakast að leggja í stæði getur Park Assist Plus séð um að klára það fyrir þig.
Með Park Assist Pro getur þú fjarstýrt bílnum í og úr stæði með appi í farsímanum: Þegar ID.7 er búinn að finna heppilegt laust stæði getur þú farið út úr bílnum og látið hann leggja sjálfkrafa í það. Þú getur einnig fjarstýrt ID.7 úr stæðinu – og sloppið þannig við að smokra þér inn í bílinn í þröngum stæðum.
Með minnisvirkninni getur þú kennt ID.7 að leggja sjálfkrafa í allt að fimm mismunandi stæði – til dæmis í þröngri heimkeyrslu, í bílskýli eða í bílskúr. Til þess þarftu aðeins að leggja ID.7 einu sinni sjálf(ur) og vista ferlið í minni. Að því loknu getur bíllinn séð um þetta sjálfur.
Með Park Assist Pro getur þú einnig fjarstýrt bílnum í og úr stæði með appi í farsímanum – og sloppið þannig við að smokra þér inn og út úr bílnum í þröngum stæðum.