In-Car-appið „Viðhaldsvöktun“ aðstoðar þig við að halda utan um viðhald, skoðanir og ástand bílsins og gerir kleift að bóka tíma á verkstæði beint í bílnum.
Það er sama hvort það er viðgerð, viðhald eða næsta smurning: Með In-Car-appinu „Viðhaldsvöktun“ hefur þú alltaf góða yfirsýn yfir stöðuna á Volkswagen-bílnum þínum. Með snjöllum skynjurum, sem fylgjast stöðugt með ástandi bílsins, getur Volkswagen-bíllinn þinn núna greint sjálfur hvenær fara þarf með hann á verkstæði og minnt þig á það sjálfkrafa. Þannig getur þú bókað tíma beint hjá Volkswagen-samstarfsaðilanum þínum. Ef þess er óskað er einnig hægt að senda bifreiðargögn sjálfkrafa til valda Volkswagen-samstarfsaðilans þíns sem hefur síðan samband við þig ef á þarf að halda.
Til þess að geta notað eiginleika In-Car-appsins þarftu aðeins að skrá þig inn með Volkswagen ID-aðganginum þínum í upplýsinga- og afþreyingarkerfi Volkswagen-bílsins. Ef búið er að virkja VW Connect2 á sumum árgerðum er appið foruppsett og hægt að nálgast það beint. Annars er hægt að hlaða því niður án endurgjalds í In-Car-netversluninni3. Þú getur líka farið í Volkswagen Connect-verslunina þar sem einnig er hægt að sækja appið sér að kostnaðarlausu.
Kostirnir í fljótu bragði
Fjöldi eiginleika í einu appi
Áður en byrjað er að nota appið skal einfaldlega samþykkja persónuverndarstefnuna og velja Volkswagen-samstarfsaðila í appinu.
Haltu góðri yfirsýn og fáðu til dæmis upplýsingar um stöðuna á Volkswagen-bílnum þínum áður en lagt er af stað í ferðalag. Appið birtir þá fyrirliggjandi viðvaranir og upplýsingar um tímabært viðhald auk þess sem það sýnir stöðu akstursaðstoðarkerfa hverju sinni.2
Ertu ekki með dagatalið við höndina til að setja inn tómabókun á verkstæði? Láttu þá appið minna þig á það síðar. Þú getur einnig sett inn áminningu fyrir aukabúnað sem er að renna út, t.d. sjúkrakassa eða þéttiefni fyrir hjólbarða, svo þú getir skipt honum út tímanlega.
Þetta verður enn þægilegra ef þú ferð í valmyndaratriðið „Stillingar“ og samþykkir þar að senda upplýsingarnar sjálfkrafa. Skráði Volkswagen-samstarfsaðilinn þinn fær þá alltaf nýjustu upplýsingar um bílinn þinn og hefur samband við þig þegar kominn er tími á þjónustuskoðun eða viðgerð.
Ef bíllinn bilar þegar þú ert á ferðinni? Í In-Car-appinu getur þú farið í „Staða“ og haft samband við neyðarþjónustu Volkswagen.
Virkni appsins
Í bílunum okkar eru skynjarar af allra nýjustu gerð sem safna stöðugt upplýsingum um ástand bílsins, m.a. kílómetrastöðu, hitastig og olíuþrýsting. Þessar upplýsingar eru greindar til að bera kennsl á mynstur og frávik sem benda til mögulegra vandamála. Þannig getum við gripið til ráðstafana í tæka tíð til að koma í veg fyrir að bíllinn bili eða verði óökufær. Þessa framsæknu nálgun köllum við framsýnt viðhald.
Algengar spurningar um In-Car-appið „Viðhaldsvöktun“
Í In-Car-netversluninni3 eða í Volkswagen Connect-versluninni getur þú sótt fleiri gagnleg öpp til viðbótar við „Viðhaldsvöktun“, t.d. Spotify5, AirConsole6 og We Charge. Hér er að finna yfirlit yfir In-Car-öpp sem eru í boði fyrir ID.-bílinn þinn, bensín-/dísilbílinn þinn eða tvinnbílinn þinn.