Virkjaðu VW Connect eða We Connect
Nettengdu bílinn í örfáum skrefum
Snjallar netþjónustur VW Connect eða We Connect létta þér lífið – áður en þú leggur af stað, á meðan þú situr undir stýri og að akstrinum loknum. Hér sýnum við þér skref fyrir skref hvernig þú tengir nýja eða notaða bílinn þinn með einföldum hætti og virkjar eiginleikana.
Söluaðilinn aðstoðar þig einnig gjarnan með fyrstu skrefin og byrjar á virkjunarferlinu með þér áður en afhending bílsins fer fram.
Athugaðu að til þess að geta nýtt þér eiginleikana þarftu að vera með Volkswagen ID-notandareikning auk þess sem þú þarft að ganga frá sérstökum samningi við Volkswagen AG um notkun netþjónustunnar.
01. Sæktu Volkswagen-appið
Sæktu Volkswagen-appið fyrir iOS eða Android þér að kostnaðarlausu.
02. Stofnaðu Volkswagen ID-notandareikning
Skráðu þig inn með Volkswagen ID-aðganginum þínum í appinu. Ef þú ert ekki með Volkswagen ID-aðgang leiðir appið þig í gegnum skráninguna skref fyrir skref.
03. Bæta við bíl
Bættu bílnum þínum við notandareikninginn í Volkswagen-appinu með verksmiðjunúmeri (grindarnúmeri) bílsins. Grindarnúmerið er að finna á framrúðu Volkswagen-bílsins eða í skráningarskírteininu.
04. Virkjaðu VW Connect eða We Connect
Gakktu frá VW Connect- eða We Connect-samningnum eins og sýnt er í appinu og farðu síðan í „Tengjast VW Connect eða We Connect“ í upplýsinga- og afþreyingarkerfinu. Fylgdu leiðbeiningunum í appinu.
Hér er hægt að sækja PDF-skjal með frekari upplýsingum og ítarlegri lýsingu á því hvernig skal virkja VW Connect eða We Connect.
Fyrir notaða bíla er hér einnig að finna leiðbeiningar um hvaða skref þarf að framkvæma til viðbótar til að virkja.