1
Remaining time, --:--
1
  1. 1.
    Framsetningin getur verið frábrugðin allt eftir útgáfu appsins og hugbúnaðarútgáfu bílsins hverju sinni.

App‑Connect. Svona geturðu notað öppin þín í bílnum.

Tengdu farsímann við bílinn – sjáðu öll öppin þín

Notaðu öppin í farsímanum með einföldum hætti á skjá upplýsinga- og afþreyingarkerfisins í bílnum2. Þannig hefur þú tónlist, fréttir, kort og hljóðbækur alltaf við höndina og getur stjórnað öllu með þægilegum hætti í bílnum.

Til þess býður Volkswagen upp á tvenns konar tengimöguleika: Apple CarPlay og Android Auto frá Google – sem hvor um sig býður upp á fjölbreytta möguleika. Sérstaklega þægilegt: Fyrir tiltekin leiðsögukerfi er í boði þráðlaus tenging. Til þess að trufla ökumanninn sem minnst er aðeins hægt að opna sérstaklega vottuð öpp meðan á akstri stendur.

Athugaðu: Volkswagen gerir kleift að nota Apple CarPlay og Android Auto, en það er hins vegar undir Apple og Google komið hvort þessir möguleikar eru í boði í tilteknum löndum.

Remaining time, --:--

Notaðu iPhone-öpp og Android-öpp í bílnum

Merki CarPlay

CarPlay

Notaðu tiltekin iPhone-öpp á skjá upplýsinga- og afþreyingarkerfisins í bílnum - þráðlaust í mörgum bílum. Notkunin er eins aðgengileg og þægileg og þú átt að venjast í iPhone: hringdu, skrifaðu skilaboð eða hlustaðu á tónlist – með því einfaldlega að ýta á hnapp. Einnig er hægt að stjórna margs konar eiginleikum og aðgerðum með þægilegum raddskipunum. Frekari upplýsingar um CarPlay fást hjá Apple.

Android Auto

Notaðu tiltekin öpp farsímans á skjá upplýsinga- og afþreyingarkerfisins í bílnum - þráðlaust í mörgum bílum. Notkunin er aðgengileg og framsetningin skýr. Með Google-raddstýringu getur þú stjórnað leiðsögn, tónlist og fréttum á þægilegan hátt með raddskipunum. Frekari upplýsingar um Android Auto fást hjá Google.

Merki Android Auto

Volkswagen-appið

Allt frá stöðuupplýsingum og skipulagningu akstursleiða til þjónustu – með Volkswagen-appinu getur þú stjórnað hinum ýmsu eiginleikum og aðgerðum í bílnum á þægilegan hátt með farsímanum.

Volkswagen-appið – stafrænn förunautur fyrir Volkswagen-bílinn þinn

Kona horfir á farsíma. Í bakgrunni sést rauður Volkswagen. Hægra megin sjást merki App Store og Google Play Store og QR-kóði sem vísar þangað.

Með Volkswagen-appinu hefur þú þægilegan aðgang að stafrænum þjónustum fyrir Volkswagen-bílinn þinn. Nota verður appið til þess að virkja þjónusturnar og nettengja bílinn. Með appinu hefur þú aðgang að þjónustum VW Connect, We Connect eða Car-Net og getur meðal annars skipulagt akstursleið og athugað stöðuna á bílnum. Með We Charge getur þú auk þess hlaðið og borgað með þægilegum hætti þegar þú ert á ferðinni.

Þú gætir líka haft áhuga á þessu