1,2
  1. 2.
    ID.7 Pro: Orkunotkun í blönduðum akstri: 16,3-14,0 kWh/100 km; CO2-losun í blönduðum akstri: 0 g/km; CO2-flokkur: A.  ID.7 Pro S: Orkunotkun í blönduðum akstri: 16,4-13,6 kWh/100 km; CO₂-losun í blönduðum akstri: 0 g/km; CO₂-flokkur: A.

Heill heimur möguleika með nettengingu fyrir bíla í ID.-línunni

Velkomin(n) í netþjónustuna fyrir ID.-bílinn þinn

Með VW Connect eða áður We Connect3 getur þú nýtt þér umferðarupplýsingar á netinu til að sneiða hjá umferðarteppum á leiðinni heim. Þú getur einnig forhitað innanrými bílsins á meðan þú borðar morgunmatinn, uppgötvað nýjar og spennandi útvarpsstöðvar í netútvarpinu í bílnum og hlustað á hlaðvörp. Í stuttu máli: Við færum stafræna möguleika ID.-bílsins þíns upp á nýtt stig. Með fjölda snjallra hjálpartækja sem standa þér til boða frá og með ID. Software 3.0 með We Connect og frá og með ID. Software 4.0 með VW Connect, allt eftir útbúnaði.4 Með Volkswagen-appinu getur þú tengt bílinn þinn við farsímann á einfaldan hátt og fengið þannig aðgang að tilteknum aðgerðum í bílnum og upplýsingum um stöðu bílsins – jafnvel þótt þú sitjir ekki í bílnum.

Þú getur séð hvort ID.-bíllinn þinn styður VW Connect / VW Connect Plus eða We Connect / We Connect Plus hér í samhæfisskoðuninniOpna ytri hlekk okkar.

Kona stendur við hliðina á Volkswagen ID.

Yfirlit yfir allar netþjónustur fyrir ID.-bílinn þinn

Allar hetjur eiga sér hjálparhellur. Með netþjónustunum í VW Connect fyrir ID.-bílinn þinn ertu með heilan helling af þeim. Finndu út hvaða þjónusta hentar best í þínu daglega lífi og hvaða skilyrði þarf að uppfylla. Hér sérðu allar þjónustur og valkosti fyrir ID.-bílinn þinn í fljótu bragði.

Einstaklingur situr í Volkswagen-bíl og notar Volkswagen-appið í farsíma

Svona virkjar þú og notar VW Connect fyrir ID.-bílinn þinn

Hér færðu leiðbeiningar um hvernig þú virkjar netþjónusturnar fyrir ID.-bílinn þinn í Volkswagen-appinu.

Maður situr heima hjá sér og horfir á spjaldtölvu

Skráðu þig núna og nýttu þér kostina

Til þess að geta tengt bílinn þinn við VW Connect-þjónusturnar fyrir ID.-bílinn þinn þarftu að skrá þig inn með Volkswagen ID-notandareikningnum þínum. Til þess skaltu einfaldlega nota tengilinn hér fyrir neðan og smella síðan á „Innskráning eða nýskráning“.

Volkswagen-öpp

Volkswagen-appið – stafrænn förunautur fyrir Volkswagen-bílinn þinn

Kona horfir á farsíma. Í bakgrunni sést rauður Volkswagen. Í horninu efst til hægri sjást merki App Store og Google Play Store.

Volkswagen-appið sameinar ýmiss konar nettengda möguleika VW Connect, We Connect og Car-Net. Það býður bæði upp á aukin þægindi og yfirsýn yfir marga helstu eiginleika og þjónustur. Horfðu á myndbandið um appið hér.

Fleiri eiginleikar í In-Car-netversluninni

ID.-bíllinn þinn er vel tengdur. Þú getur því hlaðið nytsamlegum stafrænum vörum beint niður í bílinn og virkjað þær eða framlengt gildandi samninga. Í We Connect-netversluninniOpna ytri hlekk og í In-Car-netversluninni, beint í upplýsinga- og afþreyingarkerfinu, sérðu allar vörur sem henta fyrir ID.-bílinn þinn. Þegar um er að ræða vöru sem þarf að greiða fyrir er hægt að virkja hana um leið og greiðsla hefur borist. Farðu einfaldlega yfir gögnin og greiðsluupplýsingarnar og gakktu frá pöntuninni. Nýi eiginleikinn verður þá í boði næst þegar þú setur rafbílinn þinn í gang með nettengingu.

Remaining time, --:--

AirConsole - leikir í bílnum

Sem VW Connect Plus-notandi getur þú breytt upplýsinga- og afþreyingarkerfinu í leikjatölvu með AirConsole5 og náð þér í fjölbreytt úrval leikja í bílinn. Leikirnir eru þá sýndir á skjánum í bílnum og farsímar eru notaðir sem fjarstýringar. Þessir leikir láta tímann fljúga þegar gera þarf hlé á akstrinum:

- Breakout: Recharged
- Asteroids: Recharged
- Pac-Man (Championship Edition)
- Who Wants to Be a Millionaire?
- Burnin' Rubber 5 Air

Upgrades – Volkswagen-bíllinn þinn getur alltaf lært eitthvað nýtt

Sem VW Connect-notandi getur þú á einfaldan hátt bætt eiginleikum við bílinn eftir á með Upgrades-eiginleikum7

Kynntu þér hvaða tæknilegu skilyrði þurfa að vera uppfyllt og hvaða vélbúnaður stendur til boða til þess að geta notað eiginleikann.

Athugaðu: Í boði fyrir ID. bíla með ID. Software 3.0 eða hærra frá verksmiðju.

We Connect Start - tengimöguleikar fyrir ID.-gerðir með ID. Software 2.4 eða eldri útgáfur

Ef bíllinn þinn er ekki með að minnsta kosti ID. Software 3.0 getur þú nýtt þér umferðarupplýsingar á netinu, afþreyingu og fjarstýrðar aðgerðir með We Connect Start. Því We Connect Start8 tengir þig við ID.-bílinn þinn og býður upp á fjölmarga nytsamlega kosti. Þú sérð hvaða hugbúnaðarútgáfu þú ert með í ID.-bílnum þínum á eftirfarandi hátt:

Opnaðu valmyndaratriðið „Uppsetning“ í upplýsinga- og afþreyingarkerfi ID.-bílsins. Farðu því næst í „Kerfisupplýsingar“. Útgáfa ID.-hugbúnaðarins kemur fram í hlutanum „ID.-hugbúnaður“. 

 

Ung kona stendur í porti fyrir framan ID. 4 Pro. Hún heldur á farsíma í hendinni.
9
  1. 9.
    ID.4: Orkunotkun í blönduðum akstri: 18,4-15,5 kWh/100 km; CO2-losun í blönduðum akstri: 0 g/km; CO₂-flokkur: A.

VW Connect fyrir Volkswagen-bílinn þinn

Maður stendur fyrir framan Volkswagen-bíl og horfir á farsíma

VW Connect – líka spennandi fyrir Volkswagen-bíla sem ganga ekki eingöngu fyrir rafmagni.

Með VW Connect fyrir Volkswagen-bíla sem ganga ekki alfarið fyrir rafmagni er einnig hægt að stjórna og nota tiltekna eiginleika bílsins með farsímanum. Upplýsingar um ástand bílsins og umferðarupplýsingar nánast í rauntíma létta þér lífið í dagsins önn.

Þú gætir líka haft áhuga á þessu

Netþjónusturnar. Svona gerir þú Volkswagen-bílinn þinn nettengdan.

Samhæfisskoðun. Hér færðu yfirlit yfir hvaða netþjónustur eru í boði í Volkswagen-bílnum þínum. 

Ertu með spurningar? Hér færðu skjót svör eða persónulega ráðgjöf í tengslum við stafrænar þjónustur okkar.

Þú gætir líka haft áhuga á þessu