Hvernig væri að grípa saman í tölvuleik þegar stoppað er á leiðinni? Með AirConsole1 breytir þú upplýsinga- og afþreyingarkerfinu í leikjatölvu – þar sem allir geta spilað. Það þarf bara að skanna kóða og tengja farsíma og þá er hægt að byrja: Fjölbreytt úrval leikja fyrir einn eða fleiri spilara býður upp á fyrsta flokks afþreyingu á ferðinni.
Í Volkswagen-bílum af gerðinni Passat, Tayron, Tiguan, T-Roc eða Golf frá og með árgerð 2025 sem og í nýjustu ID.-bílunum með að minnsta kosti ID. Software 4.0 líður tíminn enn hraðar þegar stoppað er til að hlaða eða bíða af sér veðrið.
Með ókeypis In-Car-appinu AirConsole verður Volkswagen-bíllinn þinn að leikjatölvu. Í stað hefðbundinna fjarstýringa getur hver og einn einfaldlega notað farsímann sinn til að spila leiki í bílnum. Upplýsinga- og afþreyingarkerfið verður að leikjatölvuskjá. Það eina sem þarf að gera er að sækja AirConsole-appið í In-Car-netversluninni, opna appið og skanna kóða til að tengja farsímann við bílinn. Að því loknu er hægt að byrja að spila.
Í boði er úrval borðspila, spurningaleikja, kappakstursleikja og íþróttaleikja fyrir allt frá einum og upp í átta spilara.
Margir leikjanna eru nú tengdir við stemningslýsingu bílsins og einnig við ID. Light í samhæfum ID.-gerðum. Það þýðir að lýsingin í innanrýminu bregst við leiknum og því sem spilarar gera í honum. Þannig verður upplifunin af leiknum mun áhrifameiri.*
Sífellt fleiri leikir eru í boði.
Hvaða skilyrði/viðbótarupplýsingar er um að ræða?
*Áhrifamikil leikjaupplifun með breytilegri stemningslýsingu og ID. Light er í boði í gerðunum ID.7, ID.5, ID.4 og ID.3 með In-Car-appinu „Wellness“ frá og með ID. Software 5.0 eða hærra. Skilyrði fyrir áhrifameiri leikjaupplifun með breytilegri stemningslýsingu í gerðunum Tiguan, Tayron og nýja T-Roc er útbúnaðarlínan Life eða hærri frá og með árgerð 2025/2026.