Volkswagen AG notar mismunandi vafrakökur á vefsíðum sínum. Vafrakökur eru litlar skrár með stillingagögnum sem eru vistaðar í tækinu sem þú notar. Í grundvallaratriðum má skipta vafrakökum niður í þrjá flokka.
01 Svokallaðar virknikökur eru nauðsynlegar til þess að vefsíðan virki rétt. Vinnsla á virknikökum er nauðsynleg til þess að gera þér kleift að heimsækja vefsvæðið (sbr. b-lið 1. mgr. 6. gr. almennu persónuverndarreglugerðarinnar).
02 Heimsókn á vefsíðu er gerð þægilegri með svokölluðum þægindakökum sem vista til dæmis stillingar á tungumáli. Lagagrundvöllur fyrir þægindakökum eru lögmætir hagsmunir (skv. f-lið 1. mgr. 6. gr. almennu persónuverndarreglugerðarinnar). Lögmætu hagsmunirnir felast í því að geta boðið upp á viss þægindi þegar notandi heimsækir vefsíðuna. Þú getur andmælt vinnslu persónuupplýsinga hvenær sem er með framvirkum hætti. Nánari upplýsingar um þetta er að finna í yfirlýsingunni um gagnavernd.
03 UTil þess að búa til notendasnið með gerviauðkenni eru notaðar svokallaðar rakningarkökur. Rakningarkökur eru eingöngu vistaðar þegar notandinn sem heimsækir vefsíðuna hefur veitt samþykki sitt fyrir því (samkvæmt a-lið 1. mgr. 6. gr. almennu persónuverndarreglugerðarinnar). Samþykkið er veitt með svokölluðum kökuborða (e. cookie-banner) sem notandinn þarf að smella á sérstaklega.
Frekari upplýsingar um notkun rakningartóla sem og um hvernig afturkalla má samþykki er að finna í yfirlýsingunni um gagnavernd.
Hér á eftir eru útskýringar á algengustu gerðum af vafrakökum:
1. Lotukökur
Á meðan notandi skoðar vefsíðu er lotukaka vistuð tímabundið í minni tölvunnar sem hefur að geyma auðkenni lotunnar og sér til þess að notandinn þarf til dæmis ekki að skrá sig inn að nýju í hvert skipti sem farið er á aðra síðu. Lotukökum er eytt þegar notandi skráir sig út eða falla úr gildi þegar lotan rennur sjálfkrafa út.
2. Varanlegar vafrakökur
Varanleg vafrakaka vistar skrá í tölvunni þinni sem fyrnist á tilteknum degi. Með því að notast við slíkar vafrakökur geta vefsíður munað upplýsingar og stillingar fyrir tiltekna notendur næst þegar þeir koma á síðuna. Það er þægilegra og fljótlegra fyrir notandann, þar sem hann þarf til dæmis ekki aftur að velja tungumál fyrir vefgátt okkar. Þegar vafrakakan er útrunnin er henni sjálfkrafa eytt þegar vefsíðan sem bjó hana til er opnuð.
3. Vafrakökur frá þriðja aðila
Vafrakökur frá þriðja aðila eru frá öðrum en þeim sem heldur vefsíðunni úti. Hér getur meðal annars verið um að ræða vafrakökur sem safna upplýsingum fyrir auglýsingar, notandamiðað efnisval og veftalnagögn.
4. Flash-vafrakökur
Flash-vafrakökur eru gagnaeiningar sem vefsíður sem notast við Adobe Flash vista í tölvunni. Flash-vafrakökur gilda í ótakmarkaðan tíma.