Þú vilt sitja áfram í svona gæðasætum
Gæta baksins þíns: Bakstuðningurinn tryggir að þú situr rétt í bílnum. Langar ferðir setja bakvöðvana undir mikið álag og þeir geta orðið þungir af þreytu. Bakstuðningurinn vinnur gegn þessu með því að slaka á hryggnum og létta þrýstingnum af hryggnum. Bakstuðningur er valbúnaður fyrir Comfortline og Highline.
Þú munt nóta þess að sitja hérna
Einu gildir hvaða útgáfu af áferð þú velur, efnið sem valið er í sætin er ávallt slitgott, þægilegt viðkomu og hefur gæði til að bera. Hófsamir litir og tímalaus mynstur sem notuð eru í Polo fara ekki úr tísku og munu ennþá líta vel út eftir mörg ár. Basket sætaáklæði er í Polo Trendline. Sætin í Comfortline eru með Slash áklæði í Titanium Black eða Aqua Graphite. Í Polo Highline er Tracks 2 áklæði í Titanium Black eða Aqua Graphite litum.
Gefðu út myndræna yfirlýsingu
Þú gefur út tískuyfirlýsingu með sætum með ArtVelours míkróflís áklæði: Þessi þægilegu sæti eru ekki bara sportleg og flott heldur mjög slitgóð. ArtVelours míkróflís er með flauelskenndri áferð á miðsvæðinu og eru afar þægileg áklæði sem auðvelt er að þrífa. Innri sætisbólstrarnir eru þaktir svörtu efni með gatamynstri en hliðarbólstrarnir og höfðupúðarnir hafa leðurkennda áferð.