Nettengdu ID.-bílinn þinn með We Connect Start
1,2,3
2.
ID.3: Raforkunotkun í kWh/100 km: í blönduðum akstri 16,3-14,9; CO2-losun í g/km: í blönduðum akstri 0. Fyrir bílana liggja eingöngu fyrir notkunar- og útblásturstölur samkvæmt WLTP, en ekki samkvæmt NEDC. Upplýsingar um notkun og CO2-losun á tilteknu bili eftir því hvaða útbúnaður er valinn fyrir bílinn.

Snjöll tenging við Volkswagen ID.-bílinn þinn

Ekurðu bíl úr ID.-línunni? Þá er bíllinn þinn ekki aðeins rafknúinn, heldur getur hann líka verið nettengdur: Með netþjónustu We Connect Start fyrir ID.-bíla með ID. Software í lægri útgáfu en 3.0 getur þú náð í stafræn aðstoðarkerfi fyrir bílinn sem veita síuppfærðar upplýsingar um hleðslu eða umferðarskilyrði og gera þér kleift að fjarstýra tilteknum aðgerðum með Volkswagen-appinu. 

Með því að uppfæra í að minnsta kosti ID. Software 3.0 getur þú bætt þjónustunum í We Connect við fyrir ID.-bílinn þinn. Með samhæfisskoðunOpna ytri hlekk getur þú séð hvaða netþjónustur ID.-bíllinn þinn styður. 

Kostirnir í fljótu bragði:

  • Tenging við netið
  • Aðgangur að fjölmörgum eiginleikum bílsins í gegnum Volkswagen-appið

Tilbúinn þegar þú ert klár

Viltu sjá hversu mikil drægni er eftir á rafhlöðu ID.-bílsins? Með Volkswagen-appið í farsímanum hefur þú alltaf góða yfirsýn yfir hleðslu og drægni rafhlöðunnar þegar ID.-bíllinn er nettengdur og getur séð hvort hleðslusnúran er tengd. Ef svo er getur þú sett hleðsluna í gang eða stöðvað hana án þess að standa upp úr sófanum. Það eina sem þú þarft að gera er að færa inn í appinu hvenær þú leggur af stað í vinnuna og þá bíður ID.-bíllinn þinn eftir þér fullhlaðinn á hverjum morgni.  

Tengingar

Góð tenging með Volkswagen-appinu

Tengingar

Góð tenging með Volkswagen-appinu

Volkswagen-appið – stafrænn förunautur fyrir ID.-bílinn þinn

Hladdu niður þægindauppfærslunni fyrir ID.-línuna: Volkswagen-appið tengir þig við Volkswagen ID.-bílinn þinn og allt sem skiptir þig máli. Það breytir farsímanum þínum í fjarstýringu fyrir tilteknar aðgerðir í bílnum. Þannig geturðu alltaf fylgst með ID.-bílnum þínum – líka þegar þú situr ekki í honum.

Nýttu þér heilan heim netþjónustu með VW Connect eða We Connect fyrir ID.-bílinn þinn 

Frá og með ID. Software 3.0 bætir VW Connect eða We Connect fyrir ID.-bílinn þinn við snjöllum hjálpartækjum sem tengja þig við bílinn og bjóða upp á margs konar nytsamlegar upplýsingar. 

VW Connect og We Connect fyrir ID.-bílinn þinn  

Með margs konar netþjónustum býður ID.-bíllinn þinn upp á sömu
þægindi og á snjalltæknivæddu heimili. Hér sérðu hvaða þjónustu þú getur
notað í bílnum frá og með ID. Software 3.0. 

Uppfærslur á ID. Software

Hugbúnaðaruppfærslur halda ID.-bílnum þínum síuppfærðum og gera
þér kleift að nýta þér nýjustu þjónusturnar. Meðal annars aukalega
netþjónustu We Connect fyrir ID.-bílinn þinn sem stendur þér til boða frá og
með ID. Software 3.0. 

Þú þarft aðeins að skrá þig og þá geturðu byrjað

Hér sýnum við þér hvernig þú virkjar We Connect Start í örfáum skrefum og notar stafrænu þjónustuna okkar í bílnum og snjallsímanum.

Þú gætir líka haft áhuga á þessu

Fyrirvari frá Volkswagen

1.
Til þess að geta notað We Connect Start-þjónustu þarf að vera með Volkswagen ID-notandareikning og skrá sig inn í We Connect Start með notandanafni og lykilorði. Auk þess þarf að gera sérstakan We Connect Start-samning við Volkswagen AG á netinu. Skrá þarf bílinn með Volkswagen-appinu (sem er fáanlegt í App Store og Google Play Store) innan 90 daga frá afhendingu bílsins til þess að geta notað We Connect Start-þjónusturnar ókeypis allan umsamda gildistímann. Innbyggð internettenging gerir kleift að nota netþjónustu We Connect Start. Volkswagen AG stendur straum af tilheyrandi gagnakostnaði sem fellur til innan þjónustusvæðis í Evrópu; þjónusturnar „Netútvarp“ og „Wi-Fi-aðgangsstaður“ eru þó undanskildar. Hægt er að nota þjónusturnar „Netútvarp“ og „Wi-Fi-aðgangsstaður“ með fartæki (t.d. farsíma) sem býður upp á Wi-Fi-aðgangsstað. Í þessu tilviki er viðkomandi þjónusta aðeins í boði með farsímaáskrift notanda hjá símafyrirtæki og innan þjónustusvæðis farsímakerfisins. Viðbótarkostnaður kann að hljótast af gagnaflutningi í gegnum internetið, allt eftir gjaldskrá viðkomandi farsímafyrirtækis og sérstaklega við notkun erlendis (t.d. reikigjöld).T il þess að nota ókeypis Volkswagen-appið þarf farsíma með viðeigandi iOS- eða Android-stýrikerfi og SIM-kort með gagnaáskrift notanda hjá símafyrirtæki. Framboð á einstaka þjónustu sem lýst er í pökkunum getur verið mismunandi eftir bílnum, útbúnaði hans og landi hverju sinni. Þjónustan er í boði í umsaminn samningstíma hverju sinni og kann að taka efnislegum breytingum meðan á honum stendur. Nálgast má nánari upplýsingar á https://connect.volkswagen.com og hjá samstarfsaðilum Volkswagen. Upplýsingar um verðskrár fyrir farsímanotkun fást hjá farsímafyrirtækinu.
3.

Eyðslu- og útblásturstölurnar sem hér koma fram voru mældar með lögboðnum mæliaðferðum. Hinn 1. janúar 2022 kom WLTP-mæliaðferðin alfarið í stað NEDC-mæliaðferðarinnar og liggja því ekki fyrir NEDC-gildi fyrir bíla sem hafa hlotið gerðarviðurkenningu síðan þá.

Upplýsingarnar eiga ekki við um tiltekinn bíl og eru ekki hluti framboðs, heldur eru þær eingöngu til samanburðar á mismunandi gerðum bíla. Aukabúnaður og fylgibúnaður (tengibúnaður, dekk o.s.frv.) geta breytt viðeigandi kennistærðum bílsins, t.d. þyngd, núningsviðnámi hjólbarða og loftmótstöðu, og kunna ásamt veður- og umferðarskilyrðum og aksturslagi að hafa áhrif á eldsneytisnotkun, orkunotkun, losun koltvísýrings og akstursgetu bílsins. Sökum raunhæfari skilyrða við mælingu er mæld eldsneytisnotkun og losun koltvísýrings samkvæmt WLTP í mörgum tilvikum hærri en þegar notast er við NEDC-aðferðafræðina. Þetta getur leitt til samsvarandi breytinga á bifreiðaskatti frá og með 1. september 2018. Frekari upplýsingar um muninn á WLTP og NEDC er að finna á https://www.volkswagen.is/is/fyrir-eigendur/gagnlegar-upplysingar/wltp.html.

Nánari upplýsingar um tilgreinda eldsneytisnotkun og tilgreinda sértæka koltvísýringslosun nýrra fólksbíla er að finna í „Leitfaden über den Kraftstoffverbrauch, die CO2-Emissionen und den Stromverbrauch neuer Personenkraftwagen“ (leiðarvísi um eldsneytisnotkun, koltvísýringslosun og rafmagnsnotkun nýrra fólksbíla) sem fæst ókeypis á öllum sölustöðum og hjá DAT Deutsche Automobil Treuhand GmbH, Hellmuth-Hirth-Str. 1, D-73760 Ostfildern, Þýskalandi, eða á vefslóðinni www.dat.de/co2.

4.
Skilyrði fyrir raddstýringu er að tveggja eða þriggja svæða loftkæling sé fyrir hendi. Sem stendur er raddstýring á netinu í boði fyrir eftirfarandi tungumál: þýsku, dönsku, ensku (breska og bandaríska), frönsku, ítölsku, hollensku, norsku, pólsku, portúgölsku, sænsku, spænsku og tékknesku. Tungumálið sem er notað fyrir raddstýringu fer eftir því hvaða tungumál er valið í upplýsinga- og afþreyingarkerfinu.
6.

Þegar þú kaupir nýjan bíl getur þú notað stafrænar þjónustur VW Connect / VW Connect Plus eða We Connect / We Connect Plus þér að kostnaðarlausu meðan á upprunalegum samningstíma stendur. Til þess að geta notað þjónustur VW Connect / VW Connect Plus eða We Connect / We Connect Plus fyrir ID. línuna þarf að vera með Volkswagen ID-notandareikning og skrá sig inn með notandanafni og lykilorði. Þegar búið er að stofna Volkswagen ID-notandareikning og tengja hann við bílinn þinn getur þú notað stafrænu þjónustuna – sem fer eftir bíl, landi, hugbúnaði og útbúnaði hverju sinni – þér að kostnaðarlausu meðan á upprunalegum samningstíma stendur. Til þess þarf að gera sérstakan samning fyrir VW Connect / VW Connect Plus eða We Connect / We Connect Plus við Volkswagen AG á netinu á slóðinni www.myvolkswagen.net eða í Volkswagen-appinu (sem er fáanlegt í App Store og Google Play Store). Það hversu lengi gjaldfrjálsi samningstíminn varir fer eftir því hvenær þú virkjar stafrænu þjónusturnar. Í síðasta lagi þegar 90 dagar eru liðnir frá því bíllinn var fyrst afhentur byrjar upprunalegi samningstíminn sem boðið er upp á ókeypis að styttast. Hægt er að sjá nákvæmar upplýsingar um gildistíma samningsins fyrir bílinn þinn á myVolkswagen á slóðinni www.myvolkswagen.net.

Sumum netþjónustum í We Connect / We Connect Plus eða VW Connect / VW Connect Plus er aðeins hægt að stjórna með Volkswagen-appinu. Til þess að geta notað ókeypis appið þarf farsíma með viðeigandi iOS- eða Android-stýrikerfi og SIM-kort með gagnaáskrift notanda hjá símafyrirtæki. Viðbótarkostnaður kann að hljótast af gagnaflutningi í gegnum internetið, allt eftir gjaldskrá viðkomandi farsímafyrirtækis og sérstaklega við notkun erlendis (t.d. reikigjöld).  

Netþjónusturnar eru í boði í umsaminn samningstíma hverju sinni og kunna að taka efnislegum breytingum meðan á honum stendur. Það getur verið breytilegt eftir löndum hvaða þjónustur eru innifaldar í pökkunum We Connect og We Connect Plus eða VW Connect og VW Connect Plus. Framboðið fer einnig eftir gerð bílsins, útbúnaði hans og því hvaða hugbúnaðarútgáfa er uppsett. Þetta á einnig við um þjónustu þriðju aðila. Nálgast má nánari upplýsingar á connect.volkswagen.com og hjá samstarfsaðilum Volkswagen. Einnig skal kynna sér nýjustu útgáfu almennu viðskiptaskilmálana fyrir stafræna þjónustu fyrir ID. línuna.