A man in a yellow jacket leans against his VW ID.

ID. 3.0 hugbúnaðar- uppfærsla

Næsta hugbúnaðaruppfærsla fyrir þinn ID. er tilbúin

Remaining time, --:--

Með ID. 3.0 hugbúnaðinum veitir Volkswagen þér nýja möguleika og umbætur án gjalds. Margar af þessum umbótum eru byggðar á ábendingum frá viðskiptavinum.

Hefur þinn ID. þegar fengið nýju 12 volta rafhlöðuna og ID. 2.4 uppfærsluna frá þínum samstarfsaðila Volkswagen? Ef svo er þá ertu klár fyrir næstu stóru uppfærslu, ID. 3.0 hugbúnaðaruppfærsluna.

Ekki er hægt að endurræsa eldri hugbúnaðarútgáfu.

  • Hvers vegna að setja upp 3.0 uppfærsluna?

    Hugbúnaðaruppfærslur veita nýjustu eiginleika og endurbætur og sjá til þess að að bíllinn fái allar stafrænar nýjungar frá Volkswagen. Með þessari OTA-uppfærslu nýtur þú góðs af nýrri virkni og öppum.

  • Hvernig fær ég uppfærsluna?

    Skilyrði fyrir því að fá ID. 3.0 í OTA-uppfærslu er virkur We Connect Start samningur, Volkswagen ID notandareikningur og að ID. 2.4 útgáfan sé uppfærð á bílnum.

Ein uppfærsla í tveimur hlutum

A visualisation of the phases of the Over-the-Air update

3.0 uppfærslan samanstendur af tveimur hlutum. Til að njóta til fulls I3.0 uppfærslunni skaltu setja upp hluta 1 og hluta 2 af uppfærslunni. Með OTA-uppfærslum getur þú uppfært þinn ID. þegar þér hentar. Lestu vandlega leiðbeiningarnar í „Release Notes“ fyrir hvorn hluta uppfærslunnar. Þessar leiðbeiningar finnur þú í upplýsinga- og afþreyingarkerfinu (infotainment system).

Er þinn ID. í netstillingu (online mode)?

Þýðir „netstilling“ (online mode) að ég sé að senda eða deila upplýsingum um staðsetningu mína?

 

ID. 3.0  uppfærslan – helstu atriði

Hér færð þú yfirlit yfir það sem ID. 3.0 hugbúnaðaruppfærslan felur í sér og hvernig á að framkvæma uppfærsluna. Ítarlega upplýsingar og fræðslumyndir er hægt að fá í gegnum tengil undir hverjum kafla.

The interior of a fully electric ID. model with the infotainment system

Hvað er uppfært með 3.0?

Hér finnur þú ítarlegar upplýsingar, ljósmyndir og fræðslumyndir um hvað hugbúnaðaruppfærslan inniheldur.

A woman in a yellow blouse walks away from her ID.3 smiling

Hvernig get ég sett upp 3.0 uppfærsluna?

Hér færð þú ítarlegar leiðbeiningar, skref fyrir skref, um hvernig á að setja upp hluta 1 og hluta 2 af 3.0 uppfærslunni.

A woman looks at her smartphone with VW logo – Over-the-Air update

Ertu með spurningar um uppfærsluna?

Ef þú hefur spurningar um uppfærsluna, vinsamlegast skoðaðu kaflann um algengar spurningar.

3.0 uppfærslan – Hvað er uppfært? 

A woman stands in front of her parked VW ID. model in red
Hvað inniheldur 3.0 uppfærslan?

3.0 í OTA-uppfærslu færir þér ýmsan gjaldfrjálsan ávinning. Smelltu á tengilinn hér fyrir neðan til að fá meiri upplýsingar um uppfærsluna.

Meira um bestu mögulegu stýringu á hleðslu og orkunotkun
Meira um endurbætta leiðsögn
Meira um þægindi
Meira um raddstýringu
Meira um öpp og virkni í bílnum
Meira um nettengdar þjónustur

Besta mögulega stýring á hleðslu og orkunotkun

Þægindi og tímasparnaður með styttri hleðslustoppum.

Með 3.0 uppfærslunni er virkni háspennurafhlöðunnar bætt og aukinn tímasparnaður næst.

Friðhelgi í notkunarstýringu
Image of a display – privacy settings

Uppsetning á valmynd fyrir auknar friðhelgisstillingar

Með þessari hugbúnaðaruppfærslu áttu kost á því að sjá núverandi friðhelgisstöðu, opna friðhelgisstillingar og sjá ítarlegan upplýsingatexta um hverja stillingu – allt í gegnum stjórnstöðina. Notendur geta sérsniðið sínar stillingar í upplýsingar- og afþreyingarkerfinu, ef notandi er skráður inn í ökutækið, og vistað þær.

Nafnlausir gestanotendur geta líka valið netstillingu (oneline mode) eða ónettengt (offline mode) (með eða án staðsetningarupplýsinga) á móttökuskjánum.

Þú ákveður fyrir þig hvaða upplýsingar þú vilt senda eða deila. Allar netþjónustur sem passa ekki við þínar friðhelgisstillingar verða afvirkjaðar í bílnum. Auk þess geta aðalnotandi og gestanotendur afvirkjað þjónustur í bílnum sem eiga ekki að vinna úr persónuupplýsingum í gegnum vörulistann í myVolkswagen appinu eða í vafra í gegnum myVolkswagen. Þetta tryggir að aðeins viðkomandi þjónusta í bílnum hindri samskipti (fyrir utan lögbundna virkni á borð við eCall).

Þægindi

í ID. Þú fylgist með því sem er mikilvægt.

AR skjár í augnhæð er valbúnaður og sendir þér gagnlegur upplýsingar beint í gegnum sjónsviðið. AR-tæknin gerir kleift að sjá nákvæmar leiðarupplýsinar um veginn sem þú ekur eftir og hvar þú átt að beygja. Þannig kemst þú þægilega og örugglega á áfangastað. Með 3.0 hugbúnaðarútgáfunni er AR skjár í augnhæð víkkaður út svo hann inniheldur viðbótarábendingar frá svæðum langt í burtu, t.d. viðvörun um stöðu rafhlöðunnar (SOC) og endurbættar leiðsagnarupplýsingar og fjarlægðarupplýsinar frá leiðsögukerfinu sem er valbúnaður.

Þinn ID. skilur þig betur

ITil að bíllinn skilji þig betur og nái betra sambandi við þig með hraðari raddstýringu, þá hefur Volkswagen endurbætt inntak og úttak raddar. Viðbragðshraði raddstýringarinnar er meiri og gæði svörunar eykst í samanburði við síðustu hugbúnaðarútgáfu. Til að fá bílinn til að skilja þig betur og eiga betri samskipti við þig.

Remaining time, --:--
Raddstýring og nettengd raddstýring

Með raddstýribúnaðinum (aukabúnaður) geturðu stýrt völdum aðgerðum í upplýsinga- og afþreyingarkerfinu á þægilegan hátt með raddskipunum. Þannig getur ID. skilið frjálslegt og eðlilegt talmál. Samskiptin hefjast með ávarpinu „Halló ID.“ eða með því að ýta á stýrishnappinn. Með þessari uppfærslu verður raddstýringin hraðari og skilningurinn á skipunum verður áreiðanlegri.

Gildur We Connect Plus samningur og Volkswagen ID notandareikningur eru skilyrði þess að fá aðgang að nettengdri raddstýringu.

Öpp í bílnum

Appið „We Charge“ hjálpar þér við hleðslu. We Charge getur hjálpað þér að finna hleðslustöðvar á korti fyrir nágrenni núverandi staðsetningar eða á áfangastaðnum og síðan vísað þér veginn þangað.

Með þessari uppfærslu gerir In-Car App þér kleift að bæta við virkni á borð við tölfræði yfir hleðslustöðvar, ítarlegri síunarmöguleika og áhugaverða staði í nágrenninu.

Þessi uppfærsla getir notanda In-Car App kleift að segja sitt álit á hleðslustöðvum með stjörnugjöf og tilkynna bilanir. Ennfremur geta notendur séð meðalstjörnugjöf sem og vandamál og bilanir sem hefur verið tilkynnt um á hleðslustöðvum.

Fleiri nettengdar þjónustur

Núna notar þú We Connect Start í þínum ID. Með þessari uppfærslu getur þú núna valið að fá næstu kynslóð af nettengdum þjónustum (Mobile Online Services) gjaldfrjálst, í tveimur pökkum: We Connect og We Connect Plus.

We Connect inniheldur viðbótar bíltengdar þjónustur, t.d. stöðu á hurðum og ljósum, og endist ótakmarkað. 

We Connect Plus inniheldur meðal annars nettengdar upplýsingar um áhugaverða staði (Online Point of Interest) og Volkswagen sér um gagnakostnað fyrir internet-útvarpið. We Connect Plus er hægt framlengja með gjaldi eftir upphafstímabilið.

  • We Connect ID. App – staðsetning bílastæðis

    Bílastæðaþjónustan birtir síðustu staðsetningu ökutækis, byggt á GPS hnitum. Þannig er hægt að finna bílinn og leiðina að honum fljótt og vel, þannig að staðsetninguna er hægt að deila með öðrum í gegnum snjallsíma.

    • Auðveld staðsetning bílsins, t.d. í borgum eða á stórum bílastæðaplönum, byggt á nákvæmu heimilisfangi
    • Fljótur aðgangur að bílnum í gegnum leiðsögn með We Connect ID. App
    • Skýrt kort sýnir bílastæðið sem og dagsetningu og tíma þegar bílnum var lagt og mögulega leið að bílnum
    • Ekki er fylgst með bílstjóranum til lengdar því gagnaflutningur á sér eingöngu stað eftir að bílnum hefur verið lagt

    Gildur We Connect samningur, Volkswagen ID notandareikningur og We Connect ID. App eru áskilin

     

  • We Connect ID. App – ástand bílsins

    Hægt er að nota stöðuþjónustuna sem sýnir stöðu bílsins til að kanna hvort gluggar og dyr séu læst eða lokuð og stöðuljósin slökkt.

    Þú getur fengið aðgang að stöðu bílsins í gegnum We Connect ID. App

    Í appinu geturðu skoðað eftirfarandi:

    • Staðan á hurðum, gluggum, framhurð og skottloki (opið, lokað)
    • Staða stöðuljósa (tveggja hliða stöðuljós, einnar hliðar stöðuljós)
    • Staðan á læsingum (ólæst, læst) fyrir allan bílinn
  • We Connect ID. App – upplýsingar um hitastig

    Lágur hiti getur haft áhrif á frammistöðu rafhlöðunnar. Það fer eftir veðurspá þar sem bíllinn er og hleðslustöðu rafhlöðunnar, en We Connect ID. App getur ráðlagt þér að forhita eða hlaða háspennurafhlöðuna. Þá verður þú beðinn um að stilla inn brottfarartíma eða hlaða bílinn til að komast hjá verri virkni rafhlöðunnar vegna kulda. Sem stendur eru upplýsingar um hitastig veittar fyrir ID.3 Pure (45 kWst/vegin rafhlaða) og ID.4 Pure (52 kWst/vegin rafhlaða).

Innleiðing

Fyrst skaltu ganga úr skugga um að þú sér með virkan We Connect Start samning
Remaining time, --:--

Virkur We Connect Start samningur er nauðsynlegur til að þú getur notið góðs af nettengdum þjónustum frá Volkswagen (Mobile Online Services). Þessar þjónustur eru gjaldfrjálsar fyrir þig.

Ef þú ert nú þegar með virkan We Connect Start samning og We Connect ID. App uppsett á snjallsímanum þínum, þá geturðu sleppt þessu skrefi.

  1. Hlaða niður gjaldfrjálsu We Connect ID. App á símann þinn. Það veltur á stýrikerfinu sem þú notar, en þú getur fundið We Connect ID. App fyrir Android eða fyrir iOS í App Store eða Google Play Store.
  2. Þú skráir þig inn í appið með Volkswagen auðkenninu þínu og bætir bílnum þínum við.
  3. Að virkja We Connect Start samninginn þinn. Til að gera þetta fylgirðu leiðbeiningunum sem birtast í appinu.

Hvernig get ég sett upp 3.0 uppfærsluna?

Uppfærslan er í tveimur hlutum. Til að njóta til fulls 3.0 uppfærslunnar er mikilvægt að setja upp hluta 1 og hluta 2 af uppfærslunni.

Með 3.0 hugbúnaðaruppfærslunni er núna mögulegt að bæta við notendum og skipta á milli aðalnotanda og annarra notenda. Eftir uppsetningu á hluta 1 í uppfærslunni skráist þú út úr bílnum. Nauðsynlegt er að vera skráður inn sem aðalnotandi til að geta notað nettengdar þjónustur (Mobile Online Services).

Remaining time, --:--